Fjármögnun sprotafyrirtækja á Íslandi. Ólík staða kynjanna.

Nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi er mikilvæg fyrir efnahagslegan vöxt sem skilar auknum verðmætum til samfélagsins. Færri konur en karlar eru frumkvöðlar en það er hagur allra að kraftar beggja kynja fái að njóta sín. Markmið þessa lokaverkefnis var því að kanna áhrif kyns í fjármögnunarumhverfi spro...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sandra Rós Bjarnadóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38171
Description
Summary:Nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi er mikilvæg fyrir efnahagslegan vöxt sem skilar auknum verðmætum til samfélagsins. Færri konur en karlar eru frumkvöðlar en það er hagur allra að kraftar beggja kynja fái að njóta sín. Markmið þessa lokaverkefnis var því að kanna áhrif kyns í fjármögnunarumhverfi sprotafyrirtækja á Íslandi. Notast var við megindlega aðferðafræði þar sem notuð voru gögn úr gagnasafni Crunchbase sem er eitt af helstu gagnasöfnum um fjárfestingar fyrirtækja í heiminum. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa góða mynd af ólíkri stöðu kynjanna í fjármögnunarumhverfi sprotafyrirtækja hér á landi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að fjármögnunarumhverfið einkennist af veigamiklum kynjamun þar sem karlar eru ríkjandi, bæði þegar kemur að frumkvöðlum innan sprotafyrirtækjanna og ákvörðunaraðila til fjármögnunar. Áhrif kynjanna voru skoðuð út frá hlutföllum á milli kynjanna, breytinga á milli ára, upphæð og tegund fjármögnunar. Niðurstöður benda til þess að kvenkyns stofnendur fái sjaldnar fjármögnun þegar hún er ekki í formi styrks. Einnig voru vísbendingar um að kvenkyns stofnendur væru líklegri til þess að fá fjármögnun frá kvenkyns ákvörðunaraðilum um fjármögnun. Innovation and entrepreneurship are vital for economic growth that leads to societal value. Higher precentage of men versus women become entreprenuers. It is in society’s best interest that the energy for innovative thought and implementation comes from both men and women entrepreneurs and that they receive the same attention and opportunities. The goal of this essay was to investigate the role of gender in start-up funding in Iceland. Quantitative methodology was used and data extracted from Crunchbase, one of the leading data system about investments. The result from this research give a good descriptive of the gender-gap in the funding enviroment in Iceland. The results showed that there is an significant gender difference in the funding enviroment in Iceland, with men dominating. This relates to both within the start-up companies that receive ...