Fjárhagsaðstoð til framfærslu: Eru tengsl milli fjölda atvinnulausra og fátæktar?

Fátækt er alltaf veruleiki í hverju samfélagi. Fjárhagsaðstoð til framfærslu er aðstoð veitt af sveitarfélögum sem neyðarúrræði vegna bágrar efnahagslegrar stöðu einstaklinga. Í þessari ritgerð voru notendur fjárhagsaðstoðar í Reykjavík skoðaðir sérstaklega með tilliti til atvinnustöðu, aldurs, fjöl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Inga Borg 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38117
Description
Summary:Fátækt er alltaf veruleiki í hverju samfélagi. Fjárhagsaðstoð til framfærslu er aðstoð veitt af sveitarfélögum sem neyðarúrræði vegna bágrar efnahagslegrar stöðu einstaklinga. Í þessari ritgerð voru notendur fjárhagsaðstoðar í Reykjavík skoðaðir sérstaklega með tilliti til atvinnustöðu, aldurs, fjölskyldugerðar og ríkisfangs. Niðurstöður leiða í ljós að stærsti hópur þeirra sem nýta sér fjárhagsaðstoð eru atvinnulausir eða óvinnufærir. Sé litið til til fjölskyldugerðar voru einhleypir karlar flestir og hafa verið það um langt tímabil. Varðandi erlenda ríkisborgara hefur þeim fjölgað töluvert á fjárhagsaðstoð og skoðaðar eru ástæður sem gætu verið orsök þess, til að mynda versnandi aðstæður á sviði ferðamála í samfélaginu. Markmið ritgerðarinnar var að greina notendur fjárhagsaðstoðar og skoða sérstaklega hvort að tengsl væru á milli fjárhagsaðstoðar og atvinnuleysis. Athugað var hvort að aðstæður á vinnumarkaði gætu haft áhrif á fjölda notenda fjárhagsaðstoðar. Við þessa rannsókn voru notuð gögn um fjölda notenda á fjárhagsaðstoð og athugað hvort að hægt sé að finna línulegt samband á milli þeirra og nokkurra breyta með línulegri aðhvarfsgreiningu. Breyturnar eru fjöldi atvinnulausra í Reykjavík, launavísitala á föstu verðlagi og fjöldi atvinnulausra í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til að þegar fjöldi atvinnulausra í samfélaginu eykst, fer fjölda notenda á fjárhagsaðstoð hækkandi. Auk þess leiðir rannsóknin í ljós að möguleiki er á því að þegar laun í samfélaginu eru hærri fer notendum á fjárhagsaðstoð fækkandi. Atvinnuleysi í öðrum sveitarfélögum hafði ekki tölfræðilega marktæka niðurstöðu í flestum tilvikum. Helsta niðurstaðan er sú að rannsóknin sem er hér framkvæmd leiðir ekki í ljós neinar afgerandi niðurstöður, heldur gefur hún aðeins vísbendingu um tengingu þessara hagstærða.