Íþróttir fyrir öll?: Aðgengi barna með annað móðurmál en íslensku að íþróttum og tómstundum í Reykjavík
Samkvæmt tölum er þátttökuhlutfall barna með annað móðurmál en íslensku í íþróttum töluvert lægra miðað við börn með íslensku að móðurmáli. Í þessari ritgerð verður fjallað um aðgengi barna með annað móðurmál en íslensku og fjölskyldna þeirra, að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi í Reykjavík. E...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2021
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/38043 |
Summary: | Samkvæmt tölum er þátttökuhlutfall barna með annað móðurmál en íslensku í íþróttum töluvert lægra miðað við börn með íslensku að móðurmáli. Í þessari ritgerð verður fjallað um aðgengi barna með annað móðurmál en íslensku og fjölskyldna þeirra, að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi í Reykjavík. Efnið verður sett í samhengi við fræðilega umfjöllun erlendra rannsókna þar sem velt er upp áhrifum íþrótta í aðlögun hópa í gegnum hugmyndir um inngildingu, gagnkvæma aðlögun og félagsauð. Stefnur innan borgarinnar leggja áherslu á jöfn tækifæri til íþrótta- og tómstundastarfs en þátttaka í slíku starfi er stór hluti af menningu og lífi barna á Íslandi. Skoðaðar verða leiðir sem hafa verið farnar til að auka þátttökuhlutfall þessara barna og hvaða áskoranir það eru sem fjölskyldur þeirra og íþrótta- og tómstundafélög mæta. Sjónum verður síðan beint að hverfum Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða í samstarfi við Þjónustumiðstöð hverfanna þar sem greint verður frá núverandi verklagi við að tengja þessar fjölskyldur við íþrótta- og tómstundastarf og tillögur að þróun þess út frá efnistökum ritgerðarinnar. |
---|