„enda er braggi bara næsta stig við tjald“: Menningararfleifð og arkitektúr

Í ritgerðinni er sjónum beint að bröggum sem risu hér á landi í kjölfar hernáms Bandamanna árið 1940. Lögð er áhersla á sögu þeirra í Reykjavík og gerð grein fyrir tilkomu þeirra og hlutverkum á stríðsárunum, sem og á árunum eftir að styrjöldinni lauk. Horft er til orðræðunnar sem skapaðist í tengsl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gréta Sigrún Pálsdóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38022
Description
Summary:Í ritgerðinni er sjónum beint að bröggum sem risu hér á landi í kjölfar hernáms Bandamanna árið 1940. Lögð er áhersla á sögu þeirra í Reykjavík og gerð grein fyrir tilkomu þeirra og hlutverkum á stríðsárunum, sem og á árunum eftir að styrjöldinni lauk. Horft er til orðræðunnar sem skapaðist í tengslum við skipulagða búsetu Íslendinga í slíkum byggingum og hvaða afleiðingar það hafði í för með sér. Teknar eru til umfjöllunar umræður fjölmiðla, viðbrögð yfirvalda auk þess að skoðanir almennings á þessum híbýlum eru viðraðar. Rætt er um hugtakið menningararf; helstu hugmyndir og kenningar þar að lútandi reifaðar og rannsakaðar nánar með sérstöku tilliti til arkitektúrs. Þá verður reynt að varpa ljósi á hvað gerist þegar ekki næst sátt um arkitektúr sem minjar og hvað á sér stað þegar þær verða bitbein erfiðra tilfinninga. Einnig er tekin til skoðunar saga og þróun húsagerðar hér á landi í þeim tilgangi að leita svara við því hvaða þættir hafa ef til vill mótað hugmyndir og viðhorf samfélagsins í garð arkitektúrs. Fjallað er sérstaklega um stríðsminjar hér á landi og hvernig staðið hefur verið að varðveislu þeirra. Að lokum er fjallað um bragga sem var endurreistur í Nauthólsvík í Reykjavík, þau viðbrögð sem framkvæmdin fékk frá ráðamönnum Reykjavíkur og hvaða dilk það dró á eftir sér.