Rafíþróttir: Böl eða blessun á tíma heimsfaraldar? Hlaðvarp um áhrif COVID-19 á rafíþróttamenningu Íslands

Í byrjun árs 2020 komu upp fréttir af nýrri kórónaveiru sem átti eftir að hafa áhrif á fólk og lifnaðarhætti þess um allan heim. Heimsfaraldur af völdum COVID-19 leiddi til þess að ýmis konar boð og bönn voru sett, þar á meðal samkomubann. Þann 13. mars 2020 var samkomubann sett á á Íslandi og fól...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnhildur Sara Arnarsdóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37963
Description
Summary:Í byrjun árs 2020 komu upp fréttir af nýrri kórónaveiru sem átti eftir að hafa áhrif á fólk og lifnaðarhætti þess um allan heim. Heimsfaraldur af völdum COVID-19 leiddi til þess að ýmis konar boð og bönn voru sett, þar á meðal samkomubann. Þann 13. mars 2020 var samkomubann sett á á Íslandi og fólk hvatt til að vinna heima og einangra sig eins og það gat. Þar sem internetið var orðið nær eina tenging fólks við umheiminn þá rauk upp fjöldi þeirra sem byrjuðu að spila tölvuleiki og horfa á rafíþróttir til að tengjast fólki annars staðar í gegnum leikina. Rafíþróttasamtök Íslands (RÍSÍ) skilgreina rafíþróttir sem „samheiti yfir skipulagða keppni í hverskyns tölvuleikjum.“ Íþróttin fer sístækkandi og eru bæði börn og fullorðnir farnir að taka þessu alvarlega sem mögulegri framtíðaratvinnu. Í boði eru námskeið fyrir börn og nýverið var sett upp rafíþróttastöð í sjónvarpinu. Stór íþróttalið hafa stofnað sín eigin rafíþróttalið og RÍSÍ heldur mót þar sem er keppt til vinninga. Í þessari greinargerð verður gerð grein fyrir rafíþróttum og hlaðvarpi sem miðli. Einnig verður farið yfir vinnuferlið á bakvið hlaðvarpsþætti, sem er hinn hluti þessa meistaraverkefnis. Í fyrri þættinum tek ég viðtal við framkvæmdastjóra Rafíþróttasamtaka Íslands, Aron Ólafsson, og Arnar Þór Elísson íþróttaáhugamann um rafíþróttir sem íþrótt. Í seinni þættinum tala ég við yfirþjálfara rafíþróttadeildar Fylkis, Bjarka Má Sigurðsson, um starfið þar og Helgu Sigurðardóttur, foreldri barns sem hefur æft rafíþróttir, um æskulýðsstarfið í miðjum heimsfaraldri og kosti og galla þess. In early 2020, there was news of a new corona virus that would affect people and their lifestyles around the world. A pandemic caused by COVID-19 led to a number of limitations and bans, including a ban on gatherings. On March 13, 2020, a ban on mass gatherings was imposed in Iceland and people were encouraged to work from home and isolate themselves as much as they could. As the internet became almost the only connection for people to the outside world, a large ...