Samanburður á vinnustaðamenningu frístundamiðstöðvar með hliðsjón af breyttum spurningalista Denison

Vinnustaðamenning er víðtækt hugtak sem mótast af viðhorfum, venjum og siðareglum innan sérhverrar skipulagsheildar. Hún hjálpar starfsfólki að tilheyra skipulagsheildinni með því að setja samskipti og atburði í samhengi og skapa þannig gildi og sameiginlega hugmyndafræði. Í þessari ritgerð er fjall...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Erling Aspelund 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37872
Description
Summary:Vinnustaðamenning er víðtækt hugtak sem mótast af viðhorfum, venjum og siðareglum innan sérhverrar skipulagsheildar. Hún hjálpar starfsfólki að tilheyra skipulagsheildinni með því að setja samskipti og atburði í samhengi og skapa þannig gildi og sameiginlega hugmyndafræði. Í þessari ritgerð er fjallað um hugtakið, vinnustaðamenningu, og gerð grein fyrir kenningum og mælitækjum sem algengt er að nota við greiningar á því. Denison mælitækið er eitt þeirra mælitækja sem er notað til þess að mæla styrk- og veikleika vinnustaðamenningar og er jafnframt mælitæki þessarar rannsóknar. Markmið rannsóknarinnar voru tvö. Í fyrsta lagi að greina vinnustaðamenningu frístundamiðstöðvar út frá nýrri útgáfu spurningalista Denison. Í öðru lagi að bera niðurstöðurnar saman við samskonar rannsókn út frá eldri spurningalistanum. Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á nýja útgáfu spurningalistans og þær breytingar sem hafa verið gerðar á milli útgáfna, auk þess að skoða þýðingu nýrrar útgáfu yfir á íslensku til þess að auðvelda notkun í rannsóknum hérlendis. Þessi rannsókn setti því fordæmi með notkun nýrrar útgáfu spurningalista Denison hérlendis og mun hún því fyrst og fremst gagnast þeim sem vilja nýta sér nýju útgáfuna í sínum rannsóknum. Rannsóknin beindist að vinnustaðamenningu Tjarnarinnar, frístundamiðstöðvar í Reykjavík og fór fram í febrúar 2021. Niðurstöðurnar gáfu til kynna að vinnustaðamenning Tjarnarinnar væri sterk þar sem allar yfirvíddir mældust á styrkleikabili innan mælitækisins. Dreifing undirvíddanna var mun jafnari í nýju útgáfunni sem bendir til þess að betra jafnvægi sé á starfsemi Tjarnarinnar að þessu sinni. Í öllum tilvikum mældist tölfræðilega ómarktækur (p>0,05) munur á yfirvíddum Tjarnarinnar milli útgáfna. Tölfræðilega marktækur (p<0,05) munur mældist hins vegar í þremur undirvíddum Þróun mannauðs og hæfni, Breytingar og Framtíðarsýn. Sökum þess að spurningum hefur verið fækkað á milli útgáfna er mælitækið gert notendavænna og þægilegra í framkvæmd. Auk þess virðist íslensk þýðing nýju ...