Lífsgæði eldra fólks, sextíu ára og eldra

Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna lífsgæði eldra fólks, rannsóknarspurningin er: Hver eru lífsgæði og heilsutengd líðan eldra fólks? Markmið rannsóknarinnar var að afla viðmiða á stöðlun tveggja nýrra matstækja (ASEBA matslistar) fyrir 60 ára og eldri. Einnig var HL-listinn eða Heilsuteng...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Laufey Böðvarsdóttir 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3784
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna lífsgæði eldra fólks, rannsóknarspurningin er: Hver eru lífsgæði og heilsutengd líðan eldra fólks? Markmið rannsóknarinnar var að afla viðmiða á stöðlun tveggja nýrra matstækja (ASEBA matslistar) fyrir 60 ára og eldri. Einnig var HL-listinn eða Heilsutengd lífsgæði lagður fyrir sama hóp en honum er ætlað að meta þætti heilsutengdra lífsgæða. Til viðbótar þessum stöðluðum matslistum var útbúinn spurningalisti varðandi þjónustu sem þátttakendur nota, ásamt tveimur opnum spurningum um stöðu einstaklinganna eftir efnahagshrunið haustið 2008. Úrtakið var tilviljunarúrtak, einstaklingar 60 ára og eldri sem búa í póstnúmeri 101 í Reykjavík. Um er að ræða bæði megindlega rannsókn og eigindlega rannsókn. Lykilorð: eldra fólk, lífsgæði, matslistar. Helstu niðurstöður eru þær að lífsgæði eru samspil heilsufarslegra, fjárhagslegra og félagslegra þátta. Einnig kemur í ljós að kynin meta lífsgæði sín með ólíkum hætti.