IFRS 15: Tekjur af samningum við viðskiptavini. Áhrif innleiðingar IFRS 15 á skráð félög á Íslandi

Félögum sem skylt er að gera upp reikningsskil sín samkvæmt alþjóðlegu reikningsskilastöðlunum, IFRS, bar að innleiða staðalinn IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini fyrir reikningsskilatímabil sem hófust 1. janúar 2018 og síðar. Markmiðið með alþjóðlegu reikningsskilastöðlunum er að auka ga...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elvar Óli Marinósson 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37809
Description
Summary:Félögum sem skylt er að gera upp reikningsskil sín samkvæmt alþjóðlegu reikningsskilastöðlunum, IFRS, bar að innleiða staðalinn IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini fyrir reikningsskilatímabil sem hófust 1. janúar 2018 og síðar. Markmiðið með alþjóðlegu reikningsskilastöðlunum er að auka gagnsæi, að auðveldara sé að bera saman upplýsingar milli landa og að bæta gæði upplýsinga í reikningsskilum. IFRS 15 byggir á því að beita skuli fimm skrefa líkani við tekjuskráningu og þeirri meginreglu að félag skrái tekjur til að lýsa yfirfærslu á vörum og þjónustu til viðskiptavina á þann veg að það endurspegli það gagngjald sem félagið á rétt á við yfirfærsluna. Í ritgerðinni er fjallað um hver áætluð áhrif af innleiðingu IFRS 15 voru fyrir innleiðingu staðalsins og hvaða áhrif staðallinn hafði í raun. Áhrifin af innleiðingu IFRS 15 voru almennt minni á tekjuskráningu félaga, sem skráð voru á aðalmarkað Kauphallar Íslands í lok árs 2018, en áætlað var. Staðallinn hafði helst áhrif á félögin Icelandair Group, Marel og Origo en þó voru þau mismikil. Niðurstaða rekstrarreiknings félaganna árið 2018, með og án innleiðingar, var borin saman ásamt leiðréttingu á opnunarstöðu óráðstafaðs eigin fjár félaganna sama ár. Innleiðing IFRS 15 hafði jákvæð áhrif á rekstrarreikning 2018 hjá Icelandair Group og Marel en neikvæð áhrif hjá Origo. Óráðstafað eigið fé 1. janúar 2018 hækkaði hjá Icelandair Group en lækkaði hjá Marel og Origo.