Reynsla flóttaforeldra og starfsmanna skóla af móttöku flóttabarna í grunnskóla

Flóttamannastofnun sameinuðu þjóðanna tekst nú á við mestu nauðungarflutninga sem hafa átt sér stað í heiminum. Einstaklingum sem hafa sótt um hæli sem flóttamenn á Íslandi hefur fjölgað gríðarlega mikið á síðustu tveimur árum. Móttaka og aðlögun flóttabarna í nýju samfélagi er bæði margþætt og flók...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37702
Description
Summary:Flóttamannastofnun sameinuðu þjóðanna tekst nú á við mestu nauðungarflutninga sem hafa átt sér stað í heiminum. Einstaklingum sem hafa sótt um hæli sem flóttamenn á Íslandi hefur fjölgað gríðarlega mikið á síðustu tveimur árum. Móttaka og aðlögun flóttabarna í nýju samfélagi er bæði margþætt og flókin. Margir skólar á Íslandi eru að taka sín fyrstu skref í móttöku flóttabarna. Skólaumhverfið er mikilvægur þáttur í aðlögunarferli flóttabarns. Í skólanum mynda flóttabörn félagsleg tengsl og sjálfsmynd þeirra mótast þar að miklu leyti þar sem flóttabörn verja stórum hluta síns daglega lífs í skólanum. Tilgangur rannsóknarinnar er að auka þekkingu innan skólasamfélagsins á móttöku og aðlögun flóttabarna í grunnskóla. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu fjölskyldna flóttabarna og starfsfólks skóla og nýta hana til þess að auka þekkingu á móttöku og aðlögun flóttabarna í skólum á Íslandi. Rannsóknin er eigindleg og niðurstöður hennar eru byggðar á hálfopnum viðtölum við foreldra flóttabarna og starfsfólk skóla. Niðurstöðurnar benda til þess að reynsla bæði foreldra og starfsmanna sé góð og að móttaka og aðlögun flóttabarnanna hafi gengið vel. Í ljós kom að nýbúakennarinn skipaði stórt hlutverk í aðlögun flóttabarnanna og í samskiptum við foreldra. The UN High Commission for Refugees (UNHCR), is currently challenged with the greatest refugee migration in history. The number of refugees that have sought asylum in Iceland over the last two years has increased significantly. To receive and to accommodate refugee children in a new environment with various cultural challenges is both complex and multidimensional. Many Icelandic schools are for the first time receiving refugee children and the school environment serves as a very important part of their adjustment to the Icelandic society. At school refugee children bond with Icelandic children and teachers, which in turn shapes their self image as they spend most week days at school. The aim of this research is to shed light on the experience both of ...