Líðan í starfi og viðhorf til stjórnunar : starfsmenn Vinnumálastofnunar

Líðan starfsmanna er mikilvæg frá sjónarhóli starfsmanna sjálfra og einnig með hliðsjón af árangri skipulagsheilda. Fyrri rannsóknir sýna að viðhorf starfsmanna til stjórnunar hjá næsta yfirmanni tengist starfsánægju og vellíðan starfsmanna í starfi. Álag í starfi meðal opinberra starfsmanna hér á l...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórdís Helga Benediktsdóttir 1976-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37695
Description
Summary:Líðan starfsmanna er mikilvæg frá sjónarhóli starfsmanna sjálfra og einnig með hliðsjón af árangri skipulagsheilda. Fyrri rannsóknir sýna að viðhorf starfsmanna til stjórnunar hjá næsta yfirmanni tengist starfsánægju og vellíðan starfsmanna í starfi. Álag í starfi meðal opinberra starfsmanna hér á landi hefur aukist undanfarin ár og mikilvægt er að varpa enn frekara ljósi á líðan þeirra. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hvernig starfsmönnum opinberrar stofnunar hér á landi líður í starfi sínu og hvert viðhorf þeirra er til þjónandi forystu. Gerð var spurningalistakönnun meðal starfsmanna Vinnumálstofnunar þar sem spurt var um viðhorf þeirra til þjónandi forystu næsta yfirmanns og líðan þeirra í starfi miðað við einkenni kulnunar í starfi og ánægju í starfi. Gögn voru greind með lýsandi tölfræði. Niðurstöður gefa vísbendingar um að stjórnendur Vinnumálastofnunar vinna eftir hugmyndafræði þjónandi forystu að einhverju leyti. Þá sýna niðurstöður að starfsánægja starfsmanna er almennt góð og að meirihluti starfsmanna upplifi lítil einkenni kulnunar í starfi. Niðurstöður sýna jákvæð tengsl milli þjónandi forystu næsta yfirmanns og starfsánægju. Einnig komu í ljós neikvæð tengsl á milli þjónandi forystu og einkenna kulnunar í starfi. Niðurstöður eru í takt við niðurstöður fyrri rannsókna og gefa vísbendingar um að þjónandi forysta geti haft jákvæð áhrif á vellíðan starfsmanna. The well-being of employees is important from the perspective of the employees themselves and also with regard to the success of the organization as a whole. Previous research shows that employees views towards management of the next superior are related to job satisfaction and employee well-being at work. The workload among public employees in Iceland has increased in recent years and it is important to shed even more light on their well being. The purpose of the study was to examine well being among employees of a public institution in Iceland and their views on servant leadership. A questionnaire survey was conducted among the ...