Summary: | Í Aðalnámskrá grunnskóla 2011/13 er lögð áhersla á leiðsagnarmat í stað lokamats. Þess konar námsmat kallar á grundvallarbreytingar á rótgrónum viðhorfum og kennsluháttum. Hvergi kristallast þessar breytingar betur en í ritunarkennslu. Kennari þarf að stíga úr hlutverki þess sem kennir, metur og dæmir og inn í hlutverk þess sem leiðbeinir og leiðsegir. Um leið þurfa nemendur líka að breyta hugarfari sínu í grundvallaratriðum; að tileinka sér hugarfar vaxtar og taka ábyrgð á eigin námi. Ritun er öflugt tæki til náms í öllum greinum og þjálfar skilning og beitingu tungumálsins. Með aukinni upplýsingatækni í skólastarfi, skapast nýir möguleikar til að leiðbeina um ritun og birta ritsmíðar nemenda. Tilgangur þessarar starfendarannsóknar var að skoða eigin kennsluhætti. Rannsóknarspurningin var: Hvernig get ég, sem kennari í 5. bekk, breytt kennsluháttum mínum í anda hugmyndafræði leiðsagnarmats, til að efla kennslu í ritun þvert á námsgreinar og þannig bætt málskilning, orðaforða og læsi nemenda minna í samræmi við hæfniviðmið Aðalnámskrár? Rannsóknarþemu verkefnisins eru upplýsingar sem verða að verkfærum, valdefling í starfi og nemendur sem þátttakendur í eigin námi. Rannsóknarþema, sem varð mér að verkfærum í rannsókninni, eru leiðsagnarmat, vaxandi hugarfar, ritun og spjaldtölvur. Með því að ígrunda og endurnýja faglega starfskenningu mína, þá hefur starf mitt innan skólans færst í þá átt að nemendur mínir skapi sjálfir sína eigin þekkingu og læri af námsferlinu. Mikilvægt er fyrir kennara að eiga samtal við nemendur og deila ábyrgð með þeim á náminu, að kenna þeim að ræða hlutina sín á milli og vinna saman á uppbyggilegan hátt. Þegar kennari leiðbeinir nemendum í ritunarferlinu, með hugmyndafræði leiðsagnarmats sem grundvöll, skapast vettvangur til þess að ræða um ritunarferlið. Reynsla mín er sú að þá séu nemendur frekar tilbúnir að tileinka sér vaxandi hugarfar. The official main curriculum, for elementary schools in Iceland 2011/13, emphasizes formative assessment instead of summative assessment. That ...
|