"Þetta er tækifæri til að fara á félagslegan tilraunavöll“ : Frístund, samþætt skóla- og frístundastarf

Tilgangur rannsóknar sem þessi ritgerð byggir á var að skoða samþætt skóla- og frístundastarf við Grunnskólann á Ísafirði, Frístund. Höfundur innleiddi verkefnið á sínum tíma með þann tilgang að koma betur til móts við þarfir barna bæði í skóla og frístundum. Með breytingum á Lögum um grunnskóla ári...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Halldórsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37658
Description
Summary:Tilgangur rannsóknar sem þessi ritgerð byggir á var að skoða samþætt skóla- og frístundastarf við Grunnskólann á Ísafirði, Frístund. Höfundur innleiddi verkefnið á sínum tíma með þann tilgang að koma betur til móts við þarfir barna bæði í skóla og frístundum. Með breytingum á Lögum um grunnskóla árið 2016 fékk starf frístundaheimila ákveðna viðurkenningu sem hluti af námsumhverfi grunnskólabarna. Samstarf aðila sem koma að skipulagi á námsumhverfi barna er misjafnt og mikilvægt að skoða það betur. Leitað var svara við því að hverju þurfi að huga þegar skapaðar eru aðstæður fyrir börn til að sinna alhliða menntun af áhuga og með gleði. Tilgangur rannsóknarinnar var að til yrði hagnýt þekking sem nýtist fag- og rekstraraðilum í skóla- og frístundastarfi. Það er von rannsakanda að niðurstöður nýtist þeim sem skipuleggja og sjá um að skapa aðstæður fyrir börn til að sinna alhliða menntun. Rannsóknin er tilviksrannsókn og byggir á eigindlegum viðtölum. Þátttakendur voru valdir með tilgangsúrtaki úr hópi starfsmanna, barna sem nú eru í Frístund og eldri barna sem tóku þátt í Frístundaverkefninu á sínum tíma. Niðurstöður rannsóknarinnar er að mikilvægt er að hafa mikið og gott skipulag þar sem allir vita til hvers er ætlast af þeim; rammi verkefnisins verður að vera skýr og allir að hafa möguleika á að segja sína skoðun. Skapa þarf traust svo samskipti geti verið hreinskiptin, lausnamiðuð og heiðarleg. Mikilvægt er að koma á fundum einu sinni eða tvisvar á ári þar sem allir sem að verkefninu koma geta átt samtal. Milli funda þarf upplýsingagjöf að vera markviss með það fyrir augum að ná til allra hópa í skólasamfélaginu. Gæta þarf vel að þeim börnum sem þurfa örlítið meiri þjónustu en flestir og fjölga þarf fagfólki sem sinnir frístundastarfi barna. The purpose of the research on which this master's thesis is based was to examine integrated school and leisure activities, called Frístund, at Ísafjörður Primary School. The author introduced the project at the school with the aim of better meeting the needs of children ...