"Þú átt að geta verið í 100% stöðu, mér finnst það bara mannréttindi.“: Áhrif þrískiptrar vaktavinnu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Upplifun og reynsla hjúkrunarfræðinga á Íslandi.

Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hver reynsla og upplifun hjúkrunarfræðinga á Íslandi í þrískiptri vaktavinnu er af jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Samkvæmt kenningum hefur ánægja heima fyrir áhrif á líðan og ánægju í vinnunni og öfugt. Of miklar kröfur í starfi valda árekstrum á milli...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Aldey Unnar Traustadóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37630
Description
Summary:Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hver reynsla og upplifun hjúkrunarfræðinga á Íslandi í þrískiptri vaktavinnu er af jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Samkvæmt kenningum hefur ánægja heima fyrir áhrif á líðan og ánægju í vinnunni og öfugt. Of miklar kröfur í starfi valda árekstrum á milli vinnu og einkalífs á meðan sjálfsstjórn yfir starfi eykur jafnvægi. Gerð var viðtalsrannsókn sem náði til 13 hjúkrunarfræðinga úr öllum landshlutum Íslands. Niðurstöður rannsóknarinnar samræmast öðrum rannsóknarniðurstöðum um jafnvægi á milli vinnu og einkalífs hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar sem vinna eftir óreglulegri, þrískiptri vaktaskýrslu finna fyrir árekstrum þegar kemur að jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Áhrifin eru það mikil að aðeins örfáir hjúkrunarfræðingar á Íslandi treysta sér til að vera í 100% starfshlutfalli. Upplifun hjúkrunarfræðinga af álagi og kröfum og tengslum þeirra við jafnvægi á milli vinnu og einkalífs er ólík eftir því hvort starfað er á litlum sjúkrahúsum á landsbyggðinni eða á stærri sérhæfðu sjúkrahúsunum. Á litlu sjúkrahúsunum eru hjúkrunarfræðingar mikið einir á meðan hjúkrunarfræðingar á stærri sjúkrahúsum eru að sinna veikari skjólstæðingum. Hjúkrunarfræðingum reynist erfitt að finna jafnvægi en segja það þó hægt með góðu skipulagi. Allar upplifa þær töluvert álag í starfi, þreytu, kröfur og ábyrgð. Viðmælendur voru sammála um að stytting vinnuvikunnar væri af hinu góða þrátt fyrir töluverða óánægju með kjarasamninga hjúkrunarfræðinga. Hugtök: Jafnvægi milli vinnu og einkalífs, vaktavinna, hjúkrunarfræðingar, álag, kröfur, stytting vinnuvikunnar The main objective of the study is to assess the experience of nurses in Iceland, who work in rotating shift system, of work/life balance. According to theories work/life balance increases satisfaction both at home and at work. Excessive demands at work cause conflicts between work and private life, while self-control over work increases balance. Interviews with open-ended questions were taken with 13 nurses, all female, from all ...