Viðbrögð ferðaþjónustunnar við Covid-19 faraldrinum

Covid-19 er mesta áskorun sem ferðaþjónstan hefur staðið frammi fyrir síðan greinin varð burðarás í íslensku efnahagslífi. Sama ástand er uppi víða um heim. Markmiðið er að greina þau áhrif sem krísan hefur á ferðaþjónustu í landinu. Markmiðið er tvíþætt; Að meta aðsteðjandi áskoranir en einnig að s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sólrún Eiríksdóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37578
Description
Summary:Covid-19 er mesta áskorun sem ferðaþjónstan hefur staðið frammi fyrir síðan greinin varð burðarás í íslensku efnahagslífi. Sama ástand er uppi víða um heim. Markmiðið er að greina þau áhrif sem krísan hefur á ferðaþjónustu í landinu. Markmiðið er tvíþætt; Að meta aðsteðjandi áskoranir en einnig að skoða hvort að í krísunni kunni að leynast ný tækifæri. Auk þess er ætlunin að meta hvort stefnubreyting hafi átt sér stað hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum, en viðbrögð Íslands við krísunni hafa vakið athygli erlendis. Byggt var á eigindlegri aðferð þar sem tekin voru fjögur viðtöl við aðila sem starfa í íslenskri ferðaþjónustu. Viðtölin voru við fulltrúa frá Ferðamálastofu, Kea Hótelum, Flyover Iceland og Ferðafélagi Íslands. Niðurstöður leiddu í ljós að almennt varð gífurlegt tekjutap í greininni. Tekjutapið var þó minna en búist var við vegna innlenda markhópsins sem kom sterkur inn, en viðskiptasamband þess hóps við íslenska ferðaþjónustu styrktist á tímum Covid-19 faraldursins. Ákveðin stefnubreyting viðfangsefnanna átti sér stað vegna breyttra markaðsforsenda. Lykilorð: Covid-19, Stefnumótun, Stefnumiðuð stjórnun, Markaðssetning, Ferðaþjónusta, Markhópar. Covid-19 is the biggest challenge that the tourism industry has faced since the industry became the backbone of the Icelandic economy. The same is found in many parts of the world. The aim of this thesis is to analyze the impact of the crisis on tourism in the country. The goal is twofold; both to assess the challenges ahead but also to examine whether new opportunities may be hidden in the crisis. In addition, the intention is to assess whether a change in policy has taken place in Icelandic tourism companies. Iceland's response to the crisis has attracted attention and the country is also known for its countryside and wilderness. This research was based on a qualitative method where four interviews were conducted with parties working in the Icelandic tourism industry. The interviews were with representatives from the Icelandic Tourist Board, Kea ...