Summary: | Rannsókn þessi fjallar um niðurstöður úr rannsóknarvinnu sem gerð var á örnefnum á þremur samliggjandi jörðum í Dalasýslu, þar sem tvær af jörðunum eru landnámsjarðir. Þessar jarðir urðu fyrir valinu vegna persónulegra tengsla höfundar við staðinn. Markmið rannsóknarinnar er að kortleggja, flokka og greina örnefni. Skoða hvernig landslag er skynjað út frá örnefnum ásamt hlutverki þeirra og tilgang þess að skilja þau og merkingu þeirra. Notast var við örnefnaskrár, þekkingu höfundar og staðkunnugra til að staðsetja örnefnin. Örnefnin voru síðan kortlögð, flokkuð og greind í landupplýsingakerfi ArcGis. Niðurstöður leiða í ljós að flest örnefnanna voru dregin af landslaginu og þar á eftir komu landsnytjar en fæst þeirra voru dregin af sögunni. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að upplifun á örnefna-landslagi ber saman við það sem fræðin hafa sagt. Við tengjumst landslaginu gegnum eigin reynslu. Viðmælendur sögðu skemmtilegra að ganga í örnefna-landslagi þar sem þeir finndu fyrir dýpri tengingu við landslagið og færu jafnvel að ímynda sér lífið sem eitt sinn var. Áður fyrr, þegar fólk ferðaðist á hestum eða fótgangandi voru örnefni vegvísar sem mikilvægt og oft á tíðum lífsnauðsynlegt var að þekkja. Þá voru örnefnin í stanslausri notkun og bárust þannig frá einni kynslóð til annarar. Nú er ferðamátinn um landið annar. Þó enn sé ferðast um á gamla mátann í skipulögðum ferðum þar sem örnefnaþekking kemur sér vel öryggis vegna, er algengast að ferðast sé á dýrindis aksturstækjum eftir lögðum leiðum með nútíma leiðsögn í formi GPS tækja. Gamlar leiðir leggjast jafnvel af og sú hætta er fyrir hendi að mörg örnefnanna tapist, séu þau ekki kortlögð. Þar kemur ArcGis til sögunnar og í dag má segja að örnefnum sé miðlað áfram með því að kortleggja þau. This thesis discusses the results of a study on the significance of Place-names. The research field was three adjoining ranches in Dalasýsla, where two of them are from the age of settlements. This site was chosen because of the author's personal relationship to the place. ...
|