Summary: | Hjúkrunarheimilið á Húsavík er um 4.400 fm mannvirki sem reisa á við hlið annarra bygginga sem eru á sama svæði við Skálabrekku á Húsavík. Þar er stefnt á að bæta við þjónustu sem þessi kjarni mun geta veitt og yrði það mikill styrkur fyrir samfélagið á Húsavík og nágrenni. Nemandi átti að taka við gagnrýni dómnefndar á tillöguna og leysa úr athugasemdum, ásamt því að mannvirkið stæðist öll lög og reglugerðir. Inniheldur lokaverkefni Aðaluppdrætti, verkteikningar, greiningar, útboðsgögn og fylgiskjöl.
|