Samkeppnishæfni Austurlands í ferðaþjónustu
Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna samkeppnishæfni Austurlands sem áfangastaðar. Í rannsókninni er demantur Porters nýttur til að meta samkeppnishæfni áfangastaðarins. Gerð var blönduð rannsókn sem samanstóð af megindlegum spurningalista sem sendur var út á samstarfsaðila Austurbrúar, mark...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2021
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/37432 |
Summary: | Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna samkeppnishæfni Austurlands sem áfangastaðar. Í rannsókninni er demantur Porters nýttur til að meta samkeppnishæfni áfangastaðarins. Gerð var blönduð rannsókn sem samanstóð af megindlegum spurningalista sem sendur var út á samstarfsaðila Austurbrúar, markaðsstofu Austurlands, ásamt eigindlegum hluta sem samanstóð af þremur viðtölum við aðila sem tengjast ferðaþjónustu á Austurlandi. Einnig var stuðst við fyrirliggjandi gögn og þá sérstaklega Áfangastaðaáætlun Austurlands fyrir árin 2018 – 2021. Í þessari rannsókn voru styrkleikar og veikleikar skoðaðir frá sjónarhóli þeirra sem koma að ferðaþjónustu á Austurlandi. Helstu niðurstöður voru að aðilar í ferðaþjónustu hafa sameiginlegan skilning á því hvað býr til samkeppnishæfni Austurlands í ferðaþjónustu, bæði með tilliti til styrkleika svæðisins og jafnframt til þess sem þarf að bæta. |
---|