Matarkörfur í bakgörðum. Borgarbúskapur og listræn nálgun á heimildarmyndaformið í tengslum við heimildarmyndina Lömbin tvö

Greinargerð þessi er lögð fram ásamt heimildarmyndinni Lömbin tvö sem lokaverkefni til MA prófs í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Hér er fjallað um borgarbúskap (e. urban farming) og hann skoðaður sem möguleg leið til aukinnar sjálfbærni borga. Einkenni þess konar búskapar eru rannsöku...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rakel Jónsdóttir 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37412
Description
Summary:Greinargerð þessi er lögð fram ásamt heimildarmyndinni Lömbin tvö sem lokaverkefni til MA prófs í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Hér er fjallað um borgarbúskap (e. urban farming) og hann skoðaður sem möguleg leið til aukinnar sjálfbærni borga. Einkenni þess konar búskapar eru rannsökuð og leitast er við að skilja betur inntak og möguleika hans. Viðhorf yfirvalda og almennings verða skoðuð en einnig verður fjallað um nokkur dæmi af borgarbúskap í Reykjavík og borgum Evrópu. Jafnframt eru takmarkanir borgarbúskapar útlistaðar og þau vandamál sem tengd eru búskap í borgum. Miðlunarleiðin er skoðuð út frá þeirri nálgun að fara ljóðræna eða skapandi leið í sjónrænni miðlun. Jafnframt er fjallað um mikilvægi þess sjónræna til þess að vera hvati fyrir vitundarvakningu og innblásturs fyrir almenning.