Einangrunarstefna Íslands gegn fólki á flótta: Stefna Útlendingastofnunar skoðuð út frá einangrun og útilokun

Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna eru í heiminum í dag 79,5 milljónir manna á flótta. Aðeins lítið brot þessa fólks endar ferð sína á Íslandi en þó fer fjöldi þeirra umsækjenda um alþjóðlega vernd sem kemur hingað til lands á ári hverju sífellt hækkandi. Þegar til Íslands er komið mæta...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Katrín Alda Ámundadóttir 1998-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37395
Description
Summary:Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna eru í heiminum í dag 79,5 milljónir manna á flótta. Aðeins lítið brot þessa fólks endar ferð sína á Íslandi en þó fer fjöldi þeirra umsækjenda um alþjóðlega vernd sem kemur hingað til lands á ári hverju sífellt hækkandi. Þegar til Íslands er komið mæta þeir hins vegar ýmsum hindrunum, til að mynda í formi einangrunar og útilokunar. Hér verður þremur gerðum þess gerð skil en það er landfræðileg einangrun, félagsleg einangrun og útilokun frá atvinnu. Reynt verður að svara spurningunni hvort það sé stefna Útlendingastofnunar sem með lögum og regluverki leiðir til þessarar einangrunar og hvaða afleiðingar hún getur haft fyrir hópinn. Þar með verður rýnt í hvort Útlendingastofnun taki virkan þátt í kerfisbundnu ofbeldi gegn fólki á flótta sem stendur frammi fyrir kerfi sem virðist oft við fyrstu sýn reyna að gera þeim erfitt fyrir í hverju fótmáli. Til að skoða það nánar verður meðal annars stuðst við kenningar og hugtök á borð við mörk og mæri, sönnunarbyrði líkamans, „okkur og hina“ en ásamt því verða grunnhugtök á borð við umsækjandi um alþjóðlega vernd, hælisleitandi og flóttamaður skilgreind. Jafnframt verður ríkjandi orðræða gagnvart fólki á flótta skoðuð en hún einkennist gjarnan af ótta og fordómum auk þess sem reynt hefur verið að setja hópinn í stöðu óvinar Vesturlanda. Lykilorð: Kerfisbundið ofbeldi, mörk, mæri, umsækjendur um alþjóðlega vernd, hælisleitendur, fólk á flótta, einangrun, útilokun. According to the United Nations Refugee agency there are 79,5 million refugees in the world right now. Only a small portion of these people end up in Iceland, but despite that the number of asylum cases there is increasing each year. When they arrive to Iceland, they face many hindrances, as in the form of isolation and exclusion. Here, three of these forms will be explained, that is geographical isolation, social isolation, and exclusion from work. An attempt will be made to answer the question if the policies, laws, and regulations of the Directorate of immigration ...