Að vekja listina í sjálfum sér : ávinningur nemenda af þátttöku í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar

Markmið þessarar rannsóknar var að stuðla að aukinni þekkingu á listkennslu og skoða hvaða áhrif þátttaka í verkefni eins og Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar, hefur á líðan og sjálfsmynd ungmenna. Jafnframt var markmiðið að skoða áhrif Skrekks á skólabrag og skólamenningu. Rannsó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóna Guðrún Jónsdóttir 1963-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37234
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að stuðla að aukinni þekkingu á listkennslu og skoða hvaða áhrif þátttaka í verkefni eins og Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar, hefur á líðan og sjálfsmynd ungmenna. Jafnframt var markmiðið að skoða áhrif Skrekks á skólabrag og skólamenningu. Rannsóknin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð. Tekin voru sextán viðtöl, átta við rýnihópa nemenda á unglingastigi (sex nemendur í hverjum hópi að meðaltali) og átta viðtöl við kennara og skólastjórnendur, úr fimm skólum. Einnig var fylgst með nemendum á úrslitakvöldi Skrekks í Borgarleikhúsinu. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að þátttaka í Skrekk hefur áhrif á líðan og sjálfsmynd ungmenna, sér í lagi þegar þeir fá tækifæri til að vinna út frá eigin reynslu í námi og lýðræðislegum gildum. Einnig leiddi rannsóknin í ljós að þátttaka í Skrekk hefur áhrif á skólasamfélagið þar sem mikil liðsheild skapaðist í kringum keppnina. Nemendur kynntust þvert á árganga og í ljós kom að þeir litu á þátttöku sína sem afar dýrmætan tíma þar sem þeir söfnuðu jákvæðum minningum. Þátttaka jók á stolt nemenda, bæði þátttakenda sem áhorfenda þátttökuskóla og þeirra nemenda sem fylgdust með úr fjarlægð. Þannig urðu þátttakendur og áhorfendur hluti af Skrekks-samfélaginu þar sem félagsleg tengsl mynduðust auk menningar- og samfélagslegra áhrifa sem hafði áhrif á skólasamfélagið í heild. Á þann hátt urðu listirnar þáttur í reynslunámi nemenda. The aim of this study was to support an increased knowledge of art education and investigate how participation in projects like Skrekkur, a talent competition for Reykjavík middle schools, affects the wellbeing and self-image of young people. The aim was simultaneously to examine Skrekkur's influence on the school atmosphere and school culture. The research is based on a qualitative research method. Sixteen interviews were conducted, eight with focus groups of adolescent students (six students in each group on average) and eight interviews were conducted with teachers and school administrators from ...