Lagarfljótsormurinn og Lagarfljótið í þverfaglegri kennslu

Í þessu verki eru kynntar hugmyndir og kennsluáætlun að fjölbreytilegu kennsluefni fyrir kennara á unglingastigi sem byggir á þjóðsögunum um Lagarfljótsorminn. Í fyrri hluta þessa verks er stutt fræðileg útlistun á heimi þjóðsagna þar sem fjallað er um einkenni og uppruna þjóðsagna og hvað það er se...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Einar Ólafsson
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3721
Description
Summary:Í þessu verki eru kynntar hugmyndir og kennsluáætlun að fjölbreytilegu kennsluefni fyrir kennara á unglingastigi sem byggir á þjóðsögunum um Lagarfljótsorminn. Í fyrri hluta þessa verks er stutt fræðileg útlistun á heimi þjóðsagna þar sem fjallað er um einkenni og uppruna þjóðsagna og hvað það er sem gerir þær langlífar. Þá er stuttlega fjallað um það hvernig þjóðsögur hafa verið notaðar í kennslu hingað til og hvaða kostir fylgja því að nota þær við kennslu. Þjóðsögurnar um Lagarfljótsorminn og Lagarfljótið skipa veglegan sess í verkinu. Fjallað er um þjóðsögurnar um Lagarfljótsorminn frá ýmsum sjónarhornum og hvernig nýta má þær í kennslu. Bent er á það hvernig þjóðsögurnar gagnast til að auka þekkingu og áhuga nemenda á heimabyggðinni. Lagarfljótið er eitt mesta vatnsfall landsins og eru því gerð góð skil. Okkur sem búum á Fljótsdalshéraði er mikið í mun að varðveita sögurnar um skrímslið og vonandi má sjá þess merki í ritgerðinni. Seinni hluti ritgerðarinnar er þverfagleg kennsluáætlun, sem samanstendur af þrettán verkefnum. Kennsluáætlunin er samin fyrir nemendur í tíunda bekk með samvinnu umsjónar- og sérgreinakennara í huga. Verkefnin tengjast kennslu í íslensku, samfélagsgreinum, lífsleikni, náttúru- og líffræði, upplýsinga- og tæknimennt og listgreinum. Grenndarnám skipar stóran sess í verkefnunum. Í lok áætlunarinnar er svo gerð grein fyrir vettvangsferð sem nemendur fara á söguslóðir Lagarfljótsormsins.