Á rafrænu flugi: Skjalastjórn og upplýsingamiðlun í flugrekstri

Tilgangur ritgerðarinnar er að skoða hvernig skjalastjórn og upplýsingamiðlun er háttað í fyrirtæki í flugrekstri. Flugrekstur er byggður á flóknu innlendu og erlendu regluverki. Til þess að hlíta þessu regluverki er nauðsynlegt að hafa gæða- og skjalastjórnarkerfi. Í þessari ritgerð verða alþjóðleg...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnlaug Dröfn Pálsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37001
Description
Summary:Tilgangur ritgerðarinnar er að skoða hvernig skjalastjórn og upplýsingamiðlun er háttað í fyrirtæki í flugrekstri. Flugrekstur er byggður á flóknu innlendu og erlendu regluverki. Til þess að hlíta þessu regluverki er nauðsynlegt að hafa gæða- og skjalastjórnarkerfi. Í þessari ritgerð verða alþjóðlegir staðlar, gæðastjórnun og skjalastjórn skilgreind og útskýrð. Fjallað er um hugtakið skjal og tilurð skjala, lífshlaup skjals og aðferðafræðina í skjalastjórn. Einnig verður fjallað um regluverkið og aðferðafræðina í gæða- og skjalastjórn sem flugreksturinn byggir á. Skjöl, skjölun og miðlun upplýsinga er gríðarlega stór og mikilvægur þáttur í flugrekstri. Vinnulag hefur breyst við tölvu- og netvæðingu síðastliðinna áratuga. Sömuleiðis hafa ríkari reglugerðarkröfur haft áhrif á gæðastjórnun og annað því tengt þrátt fyrir að grunnurinn sé alltaf sá sami. Fjallað verður um þær breytingar sem hafa orðið á vistun skjala, skjalastjórn og miðlun upplýsinga á síðastliðnum tuttugu og þremur árum hjá flugfélagi og hvaða aðferðir, tæki og tól voru og eru notuð í dag. Niðurstöður gefa til kynna mikilvægi þess, vegna umfangs rekstrarins, að gögn séu geymd og þeim stýrt miðlægt. Ennfremur að kerfisbundin skjalastjórn styðji við gæðastjórnunarkerfi og þar með reksturinn. Að auki leiða niðurstöður í ljós mikilvægi þess að skjalastjórn sé á höndum starfsmanna sem hafa til þess haldbæra þekkingu.