Áhrif innanyrðingarkennslu og skilningskennslu á skilning og innyrðingar hjá fjórum börnum á leikskólaaldri

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur rannsóknarinnar var að endurtaka að hluta rannsóknir Luciano (1986) og Miguel, Petursdottir og Carr (2005). Fjögur 5 ára börn (4 ára og 10 mánaða til 5 ára og 6 mánaða) með eðlilegan þroska tóku þátt í rannsókninni. Tilgáta ran...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ásta Særún Þorsteinsdóttir, Lilja Rós Aðalsteinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/370
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur rannsóknarinnar var að endurtaka að hluta rannsóknir Luciano (1986) og Miguel, Petursdottir og Carr (2005). Fjögur 5 ára börn (4 ára og 10 mánaða til 5 ára og 6 mánaða) með eðlilegan þroska tóku þátt í rannsókninni. Tilgáta rannsóknarinnar var að með innanyrðingarkennslu myndi hljótast skilningur í kjölfarið en ekki öfugt. Tveimur börnum voru kenndar innanyrðingar og prófuð í skilningi og tveimur kenndur skilningur og prófuð í innanyrðingum. Börnunum var kennt að flokka dýr í rándýr og klaufdýr. Kennsla á innanyrðingum fór þannig fram að börnin voru spurð t.d. „Hvernig dýr er tígrisdýr?“. Rétt svör voru styrkt. Kennsla á skilningi fór þannig fram að börnin voru beðin um að benda á rándýr eða klaufdýr. Rétt svör voru styrkt. Notast var við margfalt grunnlínusnið til að meta áhrif kennslu á innanyrðingum og skilningi. Niðurstöðurnar sýndu að þau börn sem fengu kennslu í innanyrðingum sýndu skilning þegar hann var prófaður. Þetta endurspeglar því niðurstöður rannsóknar Luciano (1986). Annað barnanna sem fékk kennslu í skilningi sýndi ekki fram á að nám á innanyrðingum hafi hlotist í kjölfar kennslunnar og féllu niðurstöðurnar fyrir þetta barn því vel að niðurstöðum Miguel o.fl. (2005). Hitt barnið sem fékk kennslu í skilningi sýndi hins vegar fram á fullkominn árangur þegar innanyrðingar voru prófaðar. Niðurstöðurnar fyrir þetta barn voru því ekki í samræmi við tilgátu rannsóknarinnar.