Fuglasafn Sigurgeirs

Verkefnið er unnið fyrir Fuglasafn Sigurgeirs við Mývatn og er ætlað til notkunar á safninu. Mikil vakning er orðin í íslensku samfélagi á bættari lífskjörum og aðstæðum barna og ungmenna. Eitt sjónarhorn þessa er aukin viðleitni til að jafna aðstöðu ungmenna hvað varðar gæði menntunar. Dæmi þess er...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Berglind Matthíasdóttir, Hafdís Bergsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3692
Description
Summary:Verkefnið er unnið fyrir Fuglasafn Sigurgeirs við Mývatn og er ætlað til notkunar á safninu. Mikil vakning er orðin í íslensku samfélagi á bættari lífskjörum og aðstæðum barna og ungmenna. Eitt sjónarhorn þessa er aukin viðleitni til að jafna aðstöðu ungmenna hvað varðar gæði menntunar. Dæmi þess er m.a. að vegna aukinna fólksflutninga á höfuðborgarsvæðið undanfarin ár hafa færri börn en áður tækifæri til þess að kynnast náttúrunni frá fyrstu hendi. Þar af leiðandi er því brýnna en áður að grunnskólar landsins reyni að mæta þessari þróun með því að skapa nemendum aðstæður og tækifæri til að kynnast náttúru landsins á fjölbreyttum vettvangi hennar. Ein leið íslenskra grunnskóla til að mæta þessari þróun er að búa til svokallaðar útikennslustofur en þær eru afmarkað svæði í nágrenni skólanna sem er alfarið nýtt undir kennslu. Náttúrugripasöfn á Íslandi eru nánast óplægður akur hvað varðar nýtingu þeirra í kennslu og flest þeirra hafa því ekki boðið upp á markvissa fræðslu hingað til. Fræðslugildi safna er þó ómetanlegt og eru þau, auk ferða nemenda út í náttúruna á vegum skólanna, kennsluvettvangur sem ætti að nýta betur. Þessa gætir í nýjum áherslum Aðalnámskrár grunnskóla, m.a. í náttúrufræði og umhverfismennt auk námskenninga. Í ljósi þess er ferð á náttúrugripasafn tækifæri til að færa nemendur nær náttúrunni og fyrirbærum hennar. Kennslusöfn hafa þann kost umfram önnur söfn, að geta boðið upp á markvissa fræðslu og vel skipulögð verkefni sem taka mið af áherslum og markmiðum Aðalnámskrár. Meginmarkmið þessa verkefnis er að færa Fuglasafn Sigurgeirs á Mývatni skrefi nær því að verða öflugt kennslusafn þar sem komið er til móts við þarfir mismunandi nemendahópa. Í kennslubréfinu sem þessi greinargerð fylgir er að finna fræðsluefni fyrir kennara um Mývatn og lífríki þess ásamt greinargóðum upplýsingum um fugla og lifnaðarhætti þeirra. Auk þess er þar verkefnasafn fyrir nemendur frá 5 til 17 ára aldurs og tenging verkefna við áfangamarkmið Aðalnámskrár: Náttúrufræði og umhverfismennt 2007.