Þróun á þátttöku kvenna í íþróttagreinum innan ÍSÍ frá 1994-2017

Á Íslandi hefur iðkendum í íþróttum innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) fjölgað mikið frá árinu 1994 til 2017. Um 72 þúsund karlar og 46 þúsund konur voru skráðir íþróttaiðkendur innan ÍSÍ árið 2017. Samkvæmt þessum iðkendatölum frá ÍSÍ eru færri kven- en karliðkendur í flestum íþróttagr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Vilhelm Már Bjarnason 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36859
Description
Summary:Á Íslandi hefur iðkendum í íþróttum innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) fjölgað mikið frá árinu 1994 til 2017. Um 72 þúsund karlar og 46 þúsund konur voru skráðir íþróttaiðkendur innan ÍSÍ árið 2017. Samkvæmt þessum iðkendatölum frá ÍSÍ eru færri kven- en karliðkendur í flestum íþróttagreinum innan ÍSÍ að undanskildu blaki, dansi, fimleikum og listskautum. Markmið verkefnisins er að greina þróun á þátttöku kvenna í íþróttagreinum innan ÍSÍ frá 1994-2017. Slík rannsókn á þróun þátttöku kvenna í íþróttum hefur að mér vitandi ekki verið gerð áður. Rannsóknin er megindleg og er unnin upp úr gögnum frá ÍSÍ og rannsóknarmiðstöðinni Rannsóknir og greining (R&G). Gögn frá ÍSÍ sem voru kynjaskipt eru einungis aðgengileg frá árinu 1994, fyrir þann tíma eru ekki til heildstæð gögn sem eru kynjaskipt. Síðustu aðgengilegu upplýsingarnar frá ÍSÍ eru frá árinu 2017, því er þetta tímabil sett sem athugunar¬¬tímabil rannsóknarinnar. Til að fá ítarlegri gögn var líka unnið upp úr gögnum frá R&G, þau gögn ná eingöngu til stúlkna á grunnskólaaldri. Niðurstöður sýna nær stöðuga fjölgun kvenna í íþróttum innan ÍSÍ frá 1994-2017. Hlutfall kveniðkenda, innbyrðis eftir íþróttagreinum, hefur breyst á þessum tíma. Fjórar fjölmennustu íþróttagreinarnar innan ÍSÍ, knattspyrna, hestaíþróttir, fimleikar og golf hafa bætt við sig hlutfallslega fleiri kveniðkendum en aðrar íþróttagreinar. Í badminton, frjálsíþróttum, handknattleik, skíðum og sundi hefur kveniðkendum fækkað og prósentuhlutfall þeirra lækkað á árabilinu 1994-2017. In Iceland, the number of athletes in sports within the Sports and Olympic Association of Iceland (ÍSÍ) increased significantly from 1994 to 2017. About 72 thousand men and 46 thousand women were registered sports athletes within ÍSÍ in 2017. According to the practitioners list from ÍSÍ, there are fewer female sport-participations than men sport-participations within ÍSÍ, except for volleyball, dance, gymnastics and archery. The project aims to analyze the development of women's participation in ...