Summary: | Í því samfélagi sem við búum í er tæknin stöðugt að breytast. Grunnskólar á Íslandi hafa síðastliðin ár staðið í ströngu við að innleiða tæknina í skólastarf sitt og spjaldtölvan er þar fremst í flokki. Undanfarin ár hefur innleiðing á spjaldtölvum í skólastarfi aukist einkum vegna fjölbreyttra eiginleika þeirra og einfaldleika í notkun. Á Íslandi eru alltaf fleiri og fleiri grunnskólar að innleiða spjaldtölvur, oftast iPad, í skólastarf sitt og þess vegna er mikilvægt að kanna hvernig þær eru notaðar í námi og kennslu. Tilgangur þessarar rannsóknar er að svara eftirfarandi tveimur rannsóknarspurningum: Hvernig nýta enskukennarar spjaldtölvur í kennslu? Hvaða áhrif hefur notkun spjaldtölva haft á kennsluhætti? Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig enskukennarar nota spjaldtölvuna í kennslu sinni, hversu langt í innleiðingu hennar þeir eru komnir og hver viðhorf þeirra til spjaldtölvunotkunar eru. Stuðst er við eigindlega aðferðafræði og byggt á viðtalsrannsókn. Tekin voru sex hálf opin einstaklingsviðtöl við enskukennara á unglingastigi. Kennararnir eru allir úr grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöðurnar leiða í ljós að allir kennararnir hafi breytt kennsluháttum sínum eftir tilkomu spjaldtölvunnar í kennslu þeirra. Kennararnir telja að spjaldtölvan sé aðeins viðbót við það nám sem var til staðar áður, og að ekki hafi orðið stórvægilegar breytingar á kennslunni sjálfri. Niðurstöðurnar gefa til kynna að kennararnir noti spjaldtölvurnar lítið eða aðeins til þess að leggja fyrir og dreifa verkefnum á nemendur. Það eru nemendurnir sem að nota spjaldtölvurnar hvað mest í kennslustund og verkefnavinnu. Niðurstöðurnar leiða einnig í ljós að innleiðing spjaldtölvunnar hafi gengið vel þó að engin nýbreytni hafi átt sér stað. In the society we live in today, technology is constantly changing. Elementary schools in Iceland have for more than thirty years, been adopting new technology to their school systems. In recent years, tablet devices have become popular in schools due to their numerous features and ...
|