Er þolinmæði, kærleikur og skilningur kannski nóg? : upplifun foreldra einhverfra barna af stuðningi á almennum frístundaheimilum

Frístundaheimili sinna mikilvægu uppeldishlutverki í lífi barna á grundvelli frítíma, samskipta og vináttu og þar gefst tækifæri til að efla þroska barna í gegnum óformlegar námsleiðir. Börn á einhverfurófi hafa oft skerta getu í félagslegum samskiptum og eru frístundaheimili án aðgreiningar kjörinn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnhildur Einarsdóttir 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36734
Description
Summary:Frístundaheimili sinna mikilvægu uppeldishlutverki í lífi barna á grundvelli frítíma, samskipta og vináttu og þar gefst tækifæri til að efla þroska barna í gegnum óformlegar námsleiðir. Börn á einhverfurófi hafa oft skerta getu í félagslegum samskiptum og eru frístundaheimili án aðgreiningar kjörinn vettvangur fyrir þau til að bæta félagsfærni sína. Þessi rannsóknarskýrsla byggir á eigindlegri rannsókn sem hafði þann tilgang að svara spurningunni: Hver er upplifun foreldra einhverfra barna af stuðningi á almennum frístundaheimilum? Tekin voru viðtöl við fimm foreldra sem eiga barn á einhverfurófi og eru á þremur mismunandi frístundaheimilum í Reykjavík. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu í ljós fjögur meginþemu en þau eru stuðningur, félagslegur ávinningur, starfsfólk og þekking þess og samskipti. Foreldrar voru almennt ánægðir með starf og starfsfólk frístundaheimilanna. Eitt þema var þó mest áberandi og varðar hvað frístundaheimili gætu gert betur fyrir þennan hóp barna en það snýr að þekkingu starfsfólks á einhverfuröskunum og algengum hegðunarbrestum. Sambærileg rannsókn hefur verið gerð erlendis í mun stærra samhengi en þetta er fyrsta rannsókn sinnar tegundar sem gerð hefur verið á Íslandi svo vitað sé.