Félagsstarfið er ekki klappað í stein : faglegar forsendur félagsstarfs eldri borgara í Reykjavík

Þessi ritgerð fjallar um félagsstarf eldri borgara í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar. Tilgangurinn er að skoða markmið og stefnu Reykjavíkurborgar í tómstundastarfi eldri borgara. Þessir þættir verða skoðaðir út frá hugmyndafræði og kenningum tómstundafræðinnar og leitast er við að greina tækifær...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Barbara Tryggvadóttir 1958-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36731
Description
Summary:Þessi ritgerð fjallar um félagsstarf eldri borgara í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar. Tilgangurinn er að skoða markmið og stefnu Reykjavíkurborgar í tómstundastarfi eldri borgara. Þessir þættir verða skoðaðir út frá hugmyndafræði og kenningum tómstundafræðinnar og leitast er við að greina tækifæri til úrbóta út frá notkun gagnreyndra aðferða. Fræðilegur bakgrunnur verkefnisins byggist á lýðræðiskenningum John Dewey, kenningunum Erikson um aldursskeiðin átta og valdeflingu Neil Thompson. Einnig verður komið inn á nýtt sjónarhorn um framtíð eldri borgara frá þeim Guðrúnu Guðmundsdóttur og Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur. Aðferðafræðin við öflun upplýsinga var aðallega lestur á árannsóknum og ýmsum fræðilegum heimildum sem og á skýrslum og upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Jafnframt voru kannanir og rýnihópur sem gerð hafa verið um þennan málaflokk haft til hliðsjónar. Mikilvægustu niðurstöður þessarar ritgerðar eru þær að lykilhugtökin lýðræði, valdefling, framtíð og fjölbreytni eldri borgara eiga sér öll samhljóm í stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum eldri borgara. Það sem upp á vantar er að notendur þjónustunnar upplifi stefnuna í meira mæli í framkvæmd. Nýmæli í þessari ritsmíð er umfjöllun um mikilvægi þess að gert sé ráð fyrir framtíð eldri borgara í tómstundastarfi en þetta hugtak hefur ekki verið ríkt í tómstundafræði hingað til.