Kennsla um orku og umhverfi : vefur með leiðbeiningum fyrir kennara og verkefnum fyrir nemendur á unglingastigi grunnskóla

Markmið meistaraverkefnisins var að búa til kennsluhugmyndavef sem eflir skilning nemenda á orku, orkuöflun og orkunýtingu á Íslandi ásamt því að efla læsi, gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð. Þær aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að stuðli að auknu vísindalæsi unglinga eru hafðar að leiðarljós...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Anna Óskarsdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36730
Description
Summary:Markmið meistaraverkefnisins var að búa til kennsluhugmyndavef sem eflir skilning nemenda á orku, orkuöflun og orkunýtingu á Íslandi ásamt því að efla læsi, gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð. Þær aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að stuðli að auknu vísindalæsi unglinga eru hafðar að leiðarljósi við gerð verkefnanna. Markmið þeirra er að efla læsi nemenda á fræðitexta og auka hugtakaskilning þeirra. Gera þá meðvitaða um misjöfn orkuform, hvaðan við fáum orku á Íslandi, hvernig hún er nýtt og hverjir eru helstu orkugjafarnir. Jafnframt að nemendur átti sig á umhverfisáhrifum orkuöflunar og orkunýtingar og geri sér grein fyrir framtíðarlausnum í orkumálum þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi með bættri orkunýtingu og orkuframleiðslu með umhverfisvænni orkugjöfum. Meistaraverkefnið er tvíþætt, annars vegar greinargerð og hins vegar vefsíðu sem inniheldur kennsluhugmyndir og fróðleik um orku á Íslandi. Í greinargerðinni er fjallað um þær kennsluaðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að stuðli að eflingu vísindalæsis ásamt því hvernig nám fer fram með vísun í námskenningar og fræðilegar hugmyndir um nám barna en einnig með vísun í þróun náttúrufræðikennslu í gegnum árin. Við gerð greinargerðarinnar var rannsóknarspurningin: Hvernig má í skólastarfi efla vísinda- og tæknilæsi grunnskólanemenda á unglingastigi um orkuöflun og orkunýtingu á Íslandi. Á vefsíðunni má finna ýmsan fróðleik um orku á Íslandi ásamt verkefnum, kennsluhugmyndum og námsmatslistum fyrir kennara en vefsíðan er hönnuð með nám og kennslu nemenda á unglingastigi í huga. Með því að nýta fjölbreyttar kennsluaðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að efli vísindalæsi nemenda varð til áhugaverður verkefnabanki þar sem nemendur takast á við krefjandi verkefni um raunveruleg málefni sem koma til með að verða hagsmunamál framtíðarinnar. The aim of this master thesis was to create a website with information and educational assignments to strengthen pupils‘ comprehension of energy, energy production and energy consumption in Iceland as well as to strengthen ...