Minningin um það vermir ennþá huga minn : tónlist sem meðferðarúrræði við Alzheimer eða heilabilun aldraðra

Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til BA–prófs í skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskóla Íslands. Viðfangsefni hennar er tónlist og músíkmeðferð sem meðferðarúrræði við Alzheimer eða heilabilun aldraðra. Rannsóknarspurning sem gengið var út frá er hvort tónlist og músíkmeðferð hafi mælanleg áhr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Katrín Arndísardóttir 1992-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36544
Description
Summary:Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til BA–prófs í skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskóla Íslands. Viðfangsefni hennar er tónlist og músíkmeðferð sem meðferðarúrræði við Alzheimer eða heilabilun aldraðra. Rannsóknarspurning sem gengið var út frá er hvort tónlist og músíkmeðferð hafi mælanleg áhrif á fólk sem greinst hefur með Alzheimer. Enn hefur ekki fundist lyf eða lækning við Alzheimer og öðrum heilabilunum þrátt fyrir talsverðar rannsóknir víða um heim. Músíkmeðferð er ein þeirra leiða sem reynst hefur vel þegar horft er til umönnunarúrræða fyrir þess einstaklinga. Til að byggja undir svarið verður gerð grein fyrir Alzheimersjúkdómnum og helstu einkennum hans og snert stuttlega á sögu músíkmeðferðar erlendis sem og hér á landi. Fjallað verður stuttlega um tvær megin aðferðir sem gjarnan er notast við á sviði músíkmeðferðar og í kjölfarið sagt frá verkefninu Tónlist ævilangt. Þá er fjallað um heimsóknir höfundar í Hlíðabæ en það er dagþjálfunardeild fyrir fólk með heilabilun. Heimsóknirnar voru framkvæmdar með það í huga að fá innsýn í hvort og hvernig tónlist hefði áhrif á skjólstæðinga Hlíðabæjar en ekki sem megindleg rannsókn. Úrvinnsla heimilda leiddi í ljós að tónlist og músíkmeðferð hefur jákvæð áhrif á fólk með heilabilun og eykur almenn lífsgæði ásamt því að hafa góð áhrif á sjálfsmynd þeirra og samskipti við aðstandendur og umönnunaraðila. The following paper is a final thesis for BA-degree in creative music communication at the Iceland Academy of the Arts. The subject matter is music and music therapy as a treatment for Alzheimer’s or dementia. The thesis statement is whether music and music therapy have recognizable effect on people who have been diagnosed with Alzheimer’s. No cure or medicine has been discovered for Alzheimer’s or dementia despite significant research all over the world. Music Therapy has been one of the most successful treatments for people who have been diagnosed with Alzheimer’s or dementia. An attempt will be made to present and explain the Alzheimer’s disease, its ...