Viðskiptaáætlun Útrétt hönd ehf.
Í þessu rannsóknarverkefni var rekstur fyrirtækisins Útrétt hönd ehf. greindur eins og hann er í dag. Fyrirtækið á og rekur níu leiguíbúðir við Þjóðólfsveg 14-16 í Bolungarvík. Íbúðirnar hafa undanfarin ár verið í fastri útleigu en við upphaf rekstursins leigði fyrirtækið íbúðirnar út fullbúnar til...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2020
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/36499 |
Summary: | Í þessu rannsóknarverkefni var rekstur fyrirtækisins Útrétt hönd ehf. greindur eins og hann er í dag. Fyrirtækið á og rekur níu leiguíbúðir við Þjóðólfsveg 14-16 í Bolungarvík. Íbúðirnar hafa undanfarin ár verið í fastri útleigu en við upphaf rekstursins leigði fyrirtækið íbúðirnar út fullbúnar til ferðamanna. Höfundur notaði bæði SVÓT- og PESTEL greiningar auk reiknilíkans Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands við vinnslu gagna. Einnig voru gerð skil á algengum kennitölum sem eru notaðar í ársreikningum til að fá betri sýn á reksturinn. Í ritgerðinni var gerð viðskiptaáætlun fyrir reksturinn út frá því eins og hann er í dag og til næstu fimm ára. Þá voru einnig settar fram tvær ólíkar sviðsmyndir. Önnur sviðsmyndin gekk út á að endurfjármagna fyrirtækið með láni fyrir óhagnaðardrifin leigufélög frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Í síðari sviðsmyndinni var sá möguleiki skoðaður að selja fimm íbúðir út úr rekstrinum og halda eftir fjórum íbúðum til langtímaleigu. Miðað við forsendur á rekstrinum eins og hann er í dag þarf fyrirtækið að gera breytingar til að gera reksturinn arðbæran. Ritgerðin er lokuð tímabundið vegna viðkvæmra upplýsinga |
---|