Heimildir og frábrigði í veitutilskipun og veitureglugerð : með áherslu á val bjóðenda og mat tilboða í innkaupum veitufyrirtækja

Í ritgerð þessari er farið yfir bakgrunn og rýndar helstu lagareglur sem gilda um innkaup veitufyrirtækja, sérstaklega varðandi val bjóðenda og mat tilboða og að hvaða leyti reglurnar eru frábrugðnar þeim sem almennt gilda um opinber innkaup. Lagaumgjörð opinberra innkaupa breyttist mikið við aðild...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnhildur Ásdís Kolbeins 1962-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36469
Description
Summary:Í ritgerð þessari er farið yfir bakgrunn og rýndar helstu lagareglur sem gilda um innkaup veitufyrirtækja, sérstaklega varðandi val bjóðenda og mat tilboða og að hvaða leyti reglurnar eru frábrugðnar þeim sem almennt gilda um opinber innkaup. Lagaumgjörð opinberra innkaupa breyttist mikið við aðild Íslands að EES-samningnum, en í kjölfar þess þurfti að aðlaga hana að tilskipunum ESB á þessu sviði. Núgildandi tilskipanir sem innleiddar voru með lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup og veitureglugerðinni nr. 340/2017 eru útboðstilskipun 2014/24/ESB og veitutilskipunin 2014/25/ESB. Þessar tvær tilskipanir eru hliðstæðar og um flest líkar, en þó eru reglur veitutilskipunarinnar heldur sveigjanlegri. Ástæðuna má rekja til þess að í ríkjum ESB eru veitufyrirtæki ýmist í opinberri eigu eða einkaeigu og ekki hefur þótt eðlilegt að láta eins strangar reglur gilda um einkafyrirtæki eins og hið opinbera. Eftir að orkutilskipanir ESB voru innleiddar hafa sum íslensk veitufyrirtæki einnig verið einkavædd að einhverju eða öllu leyti og ný fyrirtæki í einkaeigu verið stofnuð sem sinna framleiðslu og sölu rafmagns. Val bjóðenda og mat tilboða í innkaupum veitufyrirtækja er háð fyrirmælum löggjafarinnar sem byggir á veitutilskipuninni, sem eru að mestu hliðstæð reglum um val bjóðenda og mat tilboða almennt í opinberum innkaupum. Þó hafa veitufyrirtækin meira frelsi um val á innkaupaferlum og útboðsskylda þeirra er einnig mun takmarkaðri. Val bjóðenda og mat tilboða þurfa þó ávallt að grundvallast á markmiðum löggjafarinnar um hagkvæmni og virka samkeppni og meginreglum um jafnræði, gagnsæi, meðalhóf og bann við mismunun. The goal of this essay is to examine the legal framework for utilities procurement in comparison to public procurement, specifically regarding the award procedure. After the EEA Agreement entered into force, the legal framework in Iceland for public procurement changed radically, resulting from the requirement to adapt to the EU directives for public and utilities procurement. The current directives 2014/24/EU ...