Merki fyrstu íslensku knattspyrnufélaganna

Knattspyrna er ein vinsælasta íþrótt á Íslandi og eru fjölmörg knattspyrnufélög starfandi um allt land. Öll eiga þau það sameiginlegt að eiga merki. Maður getur varla ímyndað sér knattspyrnulið sem stígur inn á völlinn án þess að bera merki á brjósti sér. Fyrstu knattspyrnufélögin á Íslandi eru stof...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anton Jónas Illugason 1994-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36395
Description
Summary:Knattspyrna er ein vinsælasta íþrótt á Íslandi og eru fjölmörg knattspyrnufélög starfandi um allt land. Öll eiga þau það sameiginlegt að eiga merki. Maður getur varla ímyndað sér knattspyrnulið sem stígur inn á völlinn án þess að bera merki á brjósti sér. Fyrstu knattspyrnufélögin á Íslandi eru stofnuð í kring um aldarmótin 1900 á miklum umbóta tíma í íslensku samfélagi. Í þessari ritgerð verður fjallað um sögu og merki fjögurra elstu knattspyrnufélaga á Íslandi. Þau eru KR, Fram, Víkingur Reykjavík og Valur. Farið verður yfir hvernig þessi merki komu til og fyrir hvað þau standa. Fyrst verður fjallað um aðstæður í Reykjavík um aldarmótin 1900, þegar þessi fjögur félög verða til og einnig verður komið inn á stöðu íþrótta á þessum tíma. Í öðrum kafla verður farið yfir stofnsögu þessara fjögurra félaga hvert fyrir sig og merki þeirra greind út frá hönnunar sjónarmiði. Til þess að geta svo sett þessi merki í stærra hönnunarlegt samhengi verður fjallað almennt um merki og merkjafræði í þriðja kafla. Þar verður komið inn á hönnunarferli merkja sem og tilgang þeirra. Merki þessara félaga eru ólík þrátt fyrir að stofnsögur sumra þeirra séu líkar. Flest hafa þessi merki tekið einhverjum breytingum í gegnum líftíma þeirra, þær breytingar verða dregnar á yfirborðið og skoðaðar.