Ferðahandbækur sem markaðsefni í ferðaþjónustu : ferðahandbók fyrir Vesturland

Í þessari skýrslu er sagt frá verknámi í fjölmiðla- og útgáfufyrirtæki. Verknámið snerist um að ritstýra, búa til og hanna 20. afmælisútgáfu ferðahandbókarinnar Travel West 2019-2020 sem er leiðarvísir frá Akranesi að Dölum. Handbókin var gefin út í samstarfi við Markaðstofu Vesturlands. Verkefnið s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingunn Baldursdóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36315
Description
Summary:Í þessari skýrslu er sagt frá verknámi í fjölmiðla- og útgáfufyrirtæki. Verknámið snerist um að ritstýra, búa til og hanna 20. afmælisútgáfu ferðahandbókarinnar Travel West 2019-2020 sem er leiðarvísir frá Akranesi að Dölum. Handbókin var gefin út í samstarfi við Markaðstofu Vesturlands. Verkefnið skiptist niður í nokkra þætti sem fólust m.a í gagnaöflun, auglýsingasölu, textagerð, og tölvupósts- og símasamskiptum við ferðaþjónustuaðila víðsvegar um Vesturland. Verkefnið var yfirgripsmikið og stóð frá því í byrjun janúar 2019 fram í miðjan apríl. Undirbúningsvinna fólst í að skoða markaðstengt efni ferðaþjónustunnar á Íslandi með áherslu á Vesturland og voru eldri handbækur og breytingar og nýjungar frá fyrri árum uppfærðar. Leitast var við að hafa handbókina auðskiljanlega fyrir ferðamenn, bæði á íslensku og ensku, upplýsandi með kortum fyrir hvert svæði og fræðslu um sögu og menningu landshlutans. Í ritgerðinni er leitast við að svara spurningunni um hvaða hlutverki ferðahandbækur þjóna sem markaðsefni í ferðaþjónustu frá ýmsum sjónarhornum. Fylgja þarf margs konar verkferlum þegar hugað er að útgáfu markaðsefnis en skipulag og áætlunargerð var stór hluti hennar. Í ljós kom að þetta yrði síðasta Travel West ferðahandbókin sem gefin yrði út fyrir landshlutann sem þykir umhugsunarvert þar sem viss svæði hafa ekki enn símasamband og rannsóknir gefa vísbendingar um að ferðahandbækur gegni enn mikilvægu hlutverki við ákvörðun áfangastaða hjá ferðamönnum. Lykilorð: Vöruþróun, markaðsefni, ferðahandbækur, Vesturland, ferðaþjónusta á Íslandi This report describes vocational training in a media and publishing company. The task was was to edit, create and design the 20th anniversary publication of the Travel West Travel Guidebook 2019-2020 as a tourist guide from Akranes to Dalir. The guidebook was published in collaboration with the Western Iceland Marketing Office. The project is divided into several aspects which included data collection, advertising sales, text-making, and email and telephone communication with ...