Eru verkir hluti af daglegu lífi hjá einstaklingum með Cerebral Palsy á Íslandi? Verkir meðal barna og fullorðinna í CP eftirfylgni

Inngangur: Cerebral Palsy (CP) er regnhlífarhugtak yfir skaða eða áfall sem verður í heila sem veldur frávikum og seinkun á hreyfiþroska ásamt öðrum fylgiröskunum. Orsök CP eru áverki eða byggingargalli á óþroskuðum heila og er varanlegt ástand, versnar ekki en getur breyst. Breytilegt er á milli ei...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Fríða Halldórsdóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36312
Description
Summary:Inngangur: Cerebral Palsy (CP) er regnhlífarhugtak yfir skaða eða áfall sem verður í heila sem veldur frávikum og seinkun á hreyfiþroska ásamt öðrum fylgiröskunum. Orsök CP eru áverki eða byggingargalli á óþroskuðum heila og er varanlegt ástand, versnar ekki en getur breyst. Breytilegt er á milli einstaklinga hvernig birtingarmynd hreyfihömlunarinnar kemur fram. Auk þeirra einkenna sem geta fylgt hreyfiskerðingunni eru ýmsar afleiddar skerðingar sem geta haft áhrif á líf einstaklinganna. Verkir eru ein af þeim afleiddu skerðingum og einstaklingar með hreyfihamlanir líkt og CP eru í áhættuhópi fyrir því að upplifa slíka verki. Verkir geta haft margvísleg áhrif á líf einstaklinga og sökum þess er mikilvægt að rannsaka þá betur, ekki aðeins til að skilja betur upplifun viðkomandi heldur einnig til að geta mótað viðeigandi meðferð sem og aukið gildi fyrirbyggjandi þátta. Markmið: Að kanna algengi verkja hjá þátttakendum í CP eftirfylgni á Íslandi (CPEF). Skoðuð voru tengsl milli verkja og aldurs, kyns og grófhreyfifærniflokkunar og ennfremur áhrif verkja á daglegt líf einstaklinga. Rannsakað var hvort verkjamynstur væri háð þessum breytum og hvað einkennir þann hóp sem upplifir verki. Einnig var rýnt í tjáskiptaleiðir þátttakenda með tilliti til CFCS dreifingar þýðis. Aðferðafræði: Notast var við gögn úr CPEF sem hýst eru í sænska gagnagrunninum CPUP. Verkjaskema CPEF er notað til að skoða og meta verki hjá þátttakendum ásamt fleiri breytum sem skoðaðar eru í eftirfylgninni og notaðar í þessari rannsókn; aldur, kyn, Gross Motor Function Classification System (GMFCS) og Communication Function Classification System (CFCS). Niðurstöður: Alls skráðu 65,7% (n = 92) þátttakenda í CPEF verki. Konur upplifðu hlutfallslega meiri verki en karlar (p = 0.045). Þátttakendur í GMFCS IV voru marktækt oftar með skráða verki samanborið við einstaklinga í GMFCS I (p = 0.044). Aðhvarfsgreining (e. logistic regression) sýndi marktækan mun á verkjaskráningu hjá einstaklingum á aldursbilinu 0-10 ára samanborið við 18-39 ára (p = 0.036) ...