Gæðaúttekt á Íþróttaskóla HSV : hvað er gott og hvað má bæta?

Fjölbreytt íþróttaiðkun þar sem áhersla er lögð á þjálfun í gegnum skipulagðan leik er talin hafa margvíslegan ávinning í för með sér fyrir börn. Hún er talin geta aukið áhuga þeirra á íþróttum, minnkað líkur á brottfalli úr þeim og stuðlað að áframhaldandi hreyfingu fram á fullorðinsár. Til þess að...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Arna Rún Jónsdóttir 1996-, Þórdís Björk Gísladóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36306
Description
Summary:Fjölbreytt íþróttaiðkun þar sem áhersla er lögð á þjálfun í gegnum skipulagðan leik er talin hafa margvíslegan ávinning í för með sér fyrir börn. Hún er talin geta aukið áhuga þeirra á íþróttum, minnkað líkur á brottfalli úr þeim og stuðlað að áframhaldandi hreyfingu fram á fullorðinsár. Til þess að íþróttastarfið skili tilætluðum árangri þarf að skipuleggja það vel, setja skýr markmið sem taka mið af aldri og þroska barnanna og finna árangursríkar leiðir sem fara á til að ná þeim markmiðum. Markmið þessa rannsóknarverkefnis var að gera gæðaúttekt á Íþróttaskóla Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) á Ísafirði, sem beitir sér meðal annars fyrir jákvæðum fyrstu kynnum 6-10 ára barna af fjölbreyttri íþróttaiðkun. Notast var við blandaðar rannsóknaraðferðir þar sem sendir voru út spurningalistar til foreldra sem áttu eða höfðu átt barn/börn í íþróttaskólanum, þjálfara íþróttaskólans og formenn og þjálfara íþróttafélaga á Ísafirði. Einnig voru tekin viðtöl við yfirþjálfara íþróttaskólans og formann þróttafélags á staðnum. Niðurstöður bentu til þess að margt væri gott í starfsemi íþróttaskólans, í því sambandi er hægt að nefna að stundaskrá hans fellur vel að starfi grunnskólanna á svæðinu og fjölbreytt úrval íþróttagreina er þar í boði fyrir börnin gegn vægu gjaldi. Einnig kom í ljós að einhverjir þættir í skipulagi og utanumhaldi íþróttakennslunnar þarfnast úrbóta og þörf er á að móta ákveðna agastefnu í íþróttaskólanum. Sport sampling, emphasising organised play, is considered highly beneficial for children. Organised play may increase children’s interest in sports activities, decrease the likelihood of dropout and encourage sports participation into adulthood. Successful exercise programs require good organisation, clear targets and must provide methods to meet those targets that are mindful of a child’s age and development. The purpose of this research project was to assess the methods and quality of the sports school in Ísafjörður that aims to provide children aged 6 to 10 with positive first experiences to ...