Summary: | Verkefnið er lokað Verkefnið Leitum ekki langt yfir skammt er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2009. Verkefnið er um grenndarkennslu og umhverfismennt en leitast við að sýna fram á mikilvægi þess að þroska umhverfisvitund nemenda og að þeir fræðist á markvissan hátt um eigið byggðarlag. Verkefnið skiptist í tvo hluta. Í fræðilegum hluta er rætt um kenningar fræðimannanna John Dewey, Jean Piaget og Howard Gardner varðandi nám og þroska barna. Þeir höfðu allir þá skoðun að leggja bæri áherslu á virka þátttöku barna í eigin námi og að fyrri reynsla þeirra væri mikilvægur grunnur í náminu. Einnig er fjallað um umhverfismennt og siðfræði í náttúrunni en umhverfismennt sem námsgrein hefur þróast í heiminum með aukinni þekkingu manna í vistfræði og umhverfismálum. Útiskóla og útikennslu eru einnig gerð skil og sagt frá reynslu af slíkum verkefnum bæði hér á landi og erlendis. Hugmyndir Joseph Cornell um nám og leiki úti í náttúrunni koma einnig fram en hann telur það þjálfa bæði náttúrskynjun og upplifun barna. Síðari hlutinn er um grenndarkennslu, með áherslu á heimabyggð höfundar, Langanes. Fjallað er um nauðsyn þess að þekkja rætur sínar og sögu en það er hluti af sjálfsmynd hvers manns. Sagt er frá helstu landnámsmönnum og rakin er í stórum dráttum saga byggðar og búenda á Langanesi fyrr á tímum. Þar koma einnig fram upplýsingar um helstu breytingar sem hafa orðið í tímans rás og hver framtíðarsýnin er. Að lokum eru settar eru fram hugmyndir að verkefnum sem hægt er að vinna í tengslum við nánasta umhverfið. Abstract: The project Leitum ekki langt yfir skammt (Eng. Don't go far to search for something that's near) is written as a final dissertation for a B.Ed.-degree at the University of Akureyri’s Department of Education in spring 2009. The project is about grenndarkennsla, i.e. where students learn about their immediate environment, and environmental education, and the importance of developing the environmental awareness of the students and that they learn ...
|