Þá skortir ekki vit en þá skortir menntun til að sjá hag sinn : skólahald í Mývatnssveit 1870-1925

Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaraskor í Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri vorið 2009. Verkefni þetta segir frá skólahaldi í Mývatnssveit í byrjun 20. aldar, nánar tiltekið 1870–1925, hvernig það fór fram og hvernig gekk að halda því uppi. Farsk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ólöf Þuríður Gunnarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3626
Description
Summary:Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaraskor í Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri vorið 2009. Verkefni þetta segir frá skólahaldi í Mývatnssveit í byrjun 20. aldar, nánar tiltekið 1870–1925, hvernig það fór fram og hvernig gekk að halda því uppi. Farskóli var í sveitinni og gekk hann ágætlega, yfirleitt var kennt á tveimur stöðum í sveitinni á hverjum vetri. Nemendurnir komu á þann bæ sem kennt var á í hvert skipti og dvöldu þar uns skóla lauk, nema í leyfum sem voru um jól og páska. Kennt var alla daga vikunnar og kennsla mátti ekki vera lengur en sex klukkustundir á dag. Í Mývatnssveit var líka unglingaskóli á þessum tíma en að vísu lagðist hann af í kringum 1915. Ekki er vitað með vissu hvers vegna það gerðist en álitið er að unglingarnir hafi ekki haft nægan áhuga á að mennta sig og húsakostur skólans hafi ekki verið nægilega góður. Unglingaskólinn var til húsa í Þinghúsinu á Skútustöðum. Þangað komu nemendur og dvöldu allan tímann á meðan kennsla stóð yfir. Skólinn byrjaði í janúar og var fram í mars á hverjum vetri. Lengi hafði verið talað um að byggja sérstakan barnaskóla í sveitinni eða jafnvel byggja við Þinghúsið þannig að hægt væri að hafa bæði unglingaskólann og barnaskólann undir sama þaki og um leið samkomuhús sveitarinnar. Ekkert varð úr þeim áformum fyrr en upp úr 1950 en þá var byggður heimavistarskóli á Skútustöðum. Skólahald í Mývatnssveit var því tvíþætt á árunum 1870–1925, farskóli og unglingaskóli. Abstract: The following assignment is done as a final assignment for B.Ed –Prófs in Pre-school Education from the Department of Education Hug- og félagsvísindadeild, from the University of Akureyri, spring 2009. This assignment reveals how schools were in Mývatnssveit in the beginning of the 20th century, with focus set on the years 1870–1925, how it was carried through and how it was kept up. In Mývatnssveit was what you might call a travelling school . The teaching was carried out at two places in the region during wintertime. The students came to ...