Örvun blæðingar fiska með notkun hljóðbylgja

Ein helsta atvinnugrein Íslendinga er matvælaframleiðsla, og þar vegur sjávarútvegur og fiskvinnsla þyngst. Í matvælaframleiðslu gildir grundvallarlögmálið að gæði hráefnisins, sem unnið er úr hverju sinni, endurspegli gæði afurðanna. Lykilþáttur í því að hægt sé að fá besta mögulega hráefni úr fisk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnhildur Dís Gunnarsdóttir 1998-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36240
Description
Summary:Ein helsta atvinnugrein Íslendinga er matvælaframleiðsla, og þar vegur sjávarútvegur og fiskvinnsla þyngst. Í matvælaframleiðslu gildir grundvallarlögmálið að gæði hráefnisins, sem unnið er úr hverju sinni, endurspegli gæði afurðanna. Lykilþáttur í því að hægt sé að fá besta mögulega hráefni úr fisknum er að rétt sé staðið að blóðgun og blæðingu aflans um borð, það hefur hins vegar verið vandamál í mörgum fiskiskipum. Markmið verkefnisins var að kanna hvort hægt væri að beita hljóðbylgjum til að láta fiskinum blæða betur þegar hann færi í gegnum hefðbundið ofurkælingarferli um borð í ferskfisktogara. Svo hægt væri að ná tilsettu markmiði var framkvæmd tilraun þar sem áhrif hljóðbylgja á blæðingartíma var rannsakaður. Í tilrauninni var notast við tvo tilraunahópa, tilraunahópur A og tilraunahópur B. Tilraunahópur A fór í hljóðbylgjuker áður en hann fór hefðbundna leið í gegnum Rótex tankana um borð á vinnsludekki ferskfisktogarans Málmey SK1, á meðan tilraunahópur B fór hefðbundna leið í gegnum Rótex tankana. Báðir tilraunahóparnir voru blóðgaðir og slægðir á sama hátt. Þegar fiskurinn hafði lokið við ferlið um borð var honum komið fyrir í lest skipsins. Aflanum var síðan landað og hann metinn í frystihúsi FISK Seafood á Sauðárkróki, þar sem teknar voru mælingar með Minolta litmæli ásamt ferskleika- og gæðamati. Niðurstöður verkefnisins sýndu engan marktækan mun á lit flaka hvort sem þau fóru í hljóðbylgjukerið eða fóru í hefðbundinn blæðingarsnigill fyrir Rótex tankanna. Lykilorð: Hljóðbylgjur, blæðing, fiskur, ferskleiki og litur. Fishing is one of the oldest food production in Iceland and a main income industry for Iceland. For food production its vital that the quality of the food is also reflected in the quality of the raw material. One of the key factors in producing high quality raw material from fish is the correct way of bleeding. In recent years there has been considerable technological development of processing in fresh fish trawlers, but sufficiently bleeding of fish has, though, been problematic on ...