Samrunar á Íslandi : hvaða áhrif hafa samrunar á hagsmunaaðila fyrirtækja?

Í þessari ritgerð voru tveir samrunar á Íslandi skoðaðir. Kaup N1 á Festi og kaup Vodafone á 365 miðlum. Áhrifin sem samrunarnir höfðu á hagsmunaaðila fyrirtækjanna voru sérstaklega til skoðunar og til einföldunar voru hagsmunaaðilar taldir vera hluthafar, viðskiptavinir og starfsmenn. Rannsóknir og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristófer Eggertsson 1995-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36236
Description
Summary:Í þessari ritgerð voru tveir samrunar á Íslandi skoðaðir. Kaup N1 á Festi og kaup Vodafone á 365 miðlum. Áhrifin sem samrunarnir höfðu á hagsmunaaðila fyrirtækjanna voru sérstaklega til skoðunar og til einföldunar voru hagsmunaaðilar taldir vera hluthafar, viðskiptavinir og starfsmenn. Rannsóknir og/eða viðeigandi opinberar upplýsinagr varðandi áhrif samruna á hagsmunaaðila er af skornum skammti, nema varðandi fjárhagslega þætti. Tilgangur ritgerðarinnar var að skoða hvaða áhrif samrunar hafa á hagsmunaaðila fyrirtækja. Fræðilega umfjöllunin sýndi að áhrif samruna geta verið jákvæðir og neikvæðir. Samrunar geta lækkað rekstrarkostnað, aukið hagnað, hjálpað varðandi vinnuferla starfsmanna og skilað sér í lækkuðu verði á vörum. Samrunar geta hinsvegar líka haft neikvæð áhrif á hagsmunaaðila. Samþætting tekur of langan tíma, aukið álag á starfsmenn og að fyrirtæki taki viðskiptavini sem sjálfsögðum hlut. Niðurstöður ritgerðarinnar sýndu fram á að Sýn átti í miklum erfiðleikum fyrsta árið, fyrirtækið skilaði tapi og greiddi þ.a.l. ekki arð til hluthafa sinna. Samruni N1 og Festi hafði ekki sömu áhrif því fyrirtækið hefur skilað hagnaði öll árin frá samrunanum. Sýn lenti í miklum vandræðum með bæði þjónustustig sitt og viðskiptavinaánægju sína eftir samrunann, sem hefur þó lagast síðan þá. Álag á starfsmenn beggja fyrirtækja hefur aukist í kjölfar samrunans og endurgjöf til starfsmanna Festi hefur hríðfallið. Starfsánægja starfsmanna fyrirtækjanna hafði þó haldist óbreytt í kjölfar samrunans. Lykilorð: samruni – áhrif – hagsmunaaðilar In this study two mergers in Iceland were examined. N1 acquired Festi and Vodafone acquired 365 miðlar. The effects that the mergers had on stakeholders were examined and for simplification were the stakeholders defined as shareholders, customers and employees. The purpose of the study was to examine what effects mergers have on company stakeholders. The effects of a merger can both be positive and negative. Mergers can reduce operating costs, increase profits, help with the work ...