Heimanám og stuðningur tvítyngdra barna : viðhorf foreldra af erlendum uppruna á Suðurnesjunum

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er heimanám og stuðningur við tvítyngd börn út frá fjölmenningarlegri menntun innan skóla án aðgreiningar. Markmið rannsóknarinnar er að nota megindlegar- og eigindlegar rannsóknaraðferðir til að varpa ljósi á viðhorf foreldra af erlendum uppruna gagnvart heimanámi og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Karitas Nína Viðarsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36180
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar ritgerðar er heimanám og stuðningur við tvítyngd börn út frá fjölmenningarlegri menntun innan skóla án aðgreiningar. Markmið rannsóknarinnar er að nota megindlegar- og eigindlegar rannsóknaraðferðir til að varpa ljósi á viðhorf foreldra af erlendum uppruna gagnvart heimanámi og þeim stuðningi sem býðst börnum þeirra í íslensku skólakerfi. Rannsókninni er ætlað að svara eftirfarandi spurningu: Hver eru viðhorf erlendra foreldra gagnvart heimanámi og stuðningi við börn þeirra í grunnskólum? Viðfangsefni ritgerðarinnar var skoðað út frá lagalegu efni, fræðilegu efni í tengslum við viðfangsefni ritgerðarinnar ásamt rannsóknum því tengdu. Eigindlegur hluti rannsóknarinnar var gerður haustið 2019 með viðtölum við 15 foreldra af erlendum uppruna sem áttu börn í grunnskólum á Suðurnesjum. Einnig voru notaðar megindlegar niðurstöður sem fram komu í rannsóknarverkefninu Inclusive societies. The intergration of immigrants in Iceland sem unnið var af hópi fræðimanna við HA og HÍ í samvinnu við alþjóðlega sérfræðinga. Niðurstöðurnar benda til þess að meirihluta foreldra finnist ekki þörf á auknu heimanámi þótt skiptar skoðanir séu á gagnsemi þess. Einnig benda niðurstöðurnar til þess að meirihluta foreldra finnist ekki þörf á auknum stuðningi en þó kom fram að þeir hefðu takmarkaða vitneskju um þann stuðning sem börn þeirra fengju nú þegar. Niðurstöður úr viðtölum sýndu að foreldrar tvítyngdra barna hafa ekki verið nægilega vel upplýstir um skólastarf né rétt barna þeirra. Samskipti á milli heimila og skóla eru skert og þyrftu skólar að bæta upplýsingagjöf til foreldra af erlendum uppruna. Enn fremur kom fram að skólar þurfi að endurskoða kennslu tvítyngdra barna og samræma nálganir í kennslu þeirra á faglegan hátt til þess að markviss árangur náist. Niðurstöðurnar geta verið gagnlegar fyrir fagfólk skóla sem stefna að því að þróa árangursmiðað nám fyrir tvítyngda nemendur. The aim of this research is to explore homework and support for bilingual students in a multicultural education setting within ...