Nemendur í grunnskóla með alvarlegt fæðuofnæmi

Fleiri eru nú en áður með alvarleg fæðuofnæmi á Íslandi og um allan heim. Óljóst er hvað veldur slíkri fjölgun en líkur eru á því að meðal annars umhverfisþættir, hreinlæti og breytt mataræði hafi þar áhrif. Nauðsynlegt er að koma til móts við einstaklinga með fæðuofnæmi í skóla og samfélagi, sérsta...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Kristín Jóhannesdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36153
Description
Summary:Fleiri eru nú en áður með alvarleg fæðuofnæmi á Íslandi og um allan heim. Óljóst er hvað veldur slíkri fjölgun en líkur eru á því að meðal annars umhverfisþættir, hreinlæti og breytt mataræði hafi þar áhrif. Nauðsynlegt er að koma til móts við einstaklinga með fæðuofnæmi í skóla og samfélagi, sérstaklega er mikilvægt á barna- og unglingsárum að upplifa sig ekki öðruvísi en aðrir. Markmið rannsóknarinnar er að kanna það hvernig grunnskólar á Íslandi halda utan um einstaklinga með alvarlegt fæðuofnæmi. Með alvarlegu fæðuofnæmi er átt við ofnæmi þar sem hætta er á ofnæmislosti. Einnig er markmið að kanna það hvort að slíkt fæðuofnæmi hafi áhrif á félagsskap og líðan viðkomandi. Tekin voru fimm viðtöl við nemendur á mið- og elsta stigi í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Helstu niðurstöður voru þær að reynsla nemenda með alvarlegt fæðuofnæmi er sú að sumir skólar halda ofnæmisvald alveg frá grunnskólanum en alls ekki allir, reynt er þó að koma til móts við nemendur í öllum skólunum með því að halda ofnæmisvald frá kennslustofunni. Félagsskapur og líðan nemenda var almennt góð og virtist fæðuofnæmið ekki hafa þar áhrif. Mikilvægt er að allir starfsmenn skóla séu vel upplýstir um þann einstakling sem er með fæðuofnæmi og hvernig bregðast skal við komi upp ofnæmislost og einnig að þeir geti gætt þess að viðkomandi upplifi ekki einangrun vegna fæðuofnæmisins. More people have food allergies now than before, in Iceland and all over the world. It is unclear what causes this increase but it is believed to be caused by environmental factors, increased cleanliness and a change of diet. It is important that individuals with food allergies feel accepted in school and in the community. The objective of this research was to explore how elementary schools in Iceland take care of individuals with severe allergies. Severe allergies include those who are at risk of getting anaphylaxis from food. Five students ages 11 to 14 from four different elementary schools in the capital area of Iceland, were individually interviewed ...