Heimild Landhelgisgæslunnar til að leggja á sektir

Verkefnið er lokað til 09.06.2140. Eitt af fjölmörgum hlutverkum og skyldum Landhelgisgæslu Íslands er að sinna löggæslu á hafinu. Eins og margar sambærilegar ríkisstofnanir er Landhelgisgæslan ekki handhafi ákæruvalds eða hefur heimild til þess að beita sektum. Flest þau brot sem Landhelgisgæslan k...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Marvin Ingólfsson 1978-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36145
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 09.06.2140. Eitt af fjölmörgum hlutverkum og skyldum Landhelgisgæslu Íslands er að sinna löggæslu á hafinu. Eins og margar sambærilegar ríkisstofnanir er Landhelgisgæslan ekki handhafi ákæruvalds eða hefur heimild til þess að beita sektum. Flest þau brot sem Landhelgisgæslan kærir til lögreglu enda með sektargerð eða sekt fyrir dómi með viðeigandi kostnaði og tíma. Málin eru að öllu jöfnu einföld í eðli sínu og auðsönnuð þar sem öll sönnunargögn liggja fyrir. Í þessari ritgerð er farið í gegnum kosti þess ef Landhelgisgæslunni yrði veitt heimild til þess að beita sektum í þeim málaflokkum sem hún annast. Horft er til samstarfsstofnana og þeirra sameiginlegu brotaflokka sem tengjast starfsemi Landhelgisgæslunnar og til þess hvaða úrræði og heimildir þær stofnanir hafa til þess að leggja á sektir. Þá eru áhrif nýrra laga fyrir sænsku strandgæsluna skoðuð, sem tóku gildi nýlega. Niðurstöður sýna að með því að veita Landhelgisgæslunni heimild til þess að beita sektum þá myndi það einfalda núverandi ferli til muna, færri stofnanir kæmu að málum og málsmeðferðin öll yrði hraðari og skilvirkari. Lykilhugtök: Lögreglufræði, Landhelgisgæslan, sekt, stjórnvaldssekt, sektarviðurlög One of the responsibilities and duties for the Icelandic Coast Guard is to act as a law enforcement agency in the seas surrounding Iceland. The Coast Guard is though not a prosecuting authority and is not authorized to impose fines. Most of the offences that the Coast Guard directs to the police end with fines or go to court with high cost and time. They are generally simple in nature and easily proven where all the evidence is available. This dissertation examines the advantages of granting the Coast Guard the authority to apply fines. Co-operative agencies and the collective offences related to the Coast Guard's activities are considered, and the resources they have to impose fines. In this regard, the impact of a recent legislation on the Swedish Coast Guard is also examined. The results show that by authorizing the ...