Núvitund : áhrif á frammistöðu íþróttafólks og ávinningur þess að byrja snemma

Verkefnið er lokað til 18.03.2021. Ritgerð þessi er unnin til B.Ed.- prófs í kennarafræðum á íþróttakjörsviði við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Núvitund snýst um að veita eigin hugsunum og tilfinningum athygli án þess að leggja á þær dóma eða staldra of lengi við þær. Núvitundariðkun hefur noti...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrefna Maren Jörgensdóttir 1995-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36118
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 18.03.2021. Ritgerð þessi er unnin til B.Ed.- prófs í kennarafræðum á íþróttakjörsviði við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Núvitund snýst um að veita eigin hugsunum og tilfinningum athygli án þess að leggja á þær dóma eða staldra of lengi við þær. Núvitundariðkun hefur notið mikilla vinsælda í vestrænu samfélagi síðustu ár og hafa einstaklingar nýtt sér hana til þess að hlúa að sér í hraða hversdagsins. Í þessari ritgerð verður uppruna hugleiðslu og núvitundar gerð skil sem og notkun núvitundar í dag og áhrifum á almenna heilsu fólks. Meginmarkmið ritgerðarinnar eru að kanna áhrif núvitundar á íþróttafólk og frammistöðu þeirra og að kanna hvort ávinningur felist í því að kenna börnum og unglingum núvitund. Því verða rannsóknir og annað efni þessu tengt skoðað. Niðurstöður þeirra rannsókna sem skoðaðar eru gefa til kynna að núvitundariðkun geti haft ýmis jákvæð áhrif á íþróttafólk sem geti stuðlað að bættri frammistöðu þeirra. Algengustu áhrifin sem rannsakendur urðu varir við voru t.d. minni frammistöðukvíði, meiri sjálfsstjórn, betri einbeiting og bætt tilfinningastjórnun. Niðurstöður rannsókna er varða börn og ungmenni sem skoðaðar eru, varpa m.a. ljósi á vaxandi áhuga fólks á að kynna núvitund fyrir börnum. Mikil gróska hefur verið hér á landi í innleiðingu núvitundar í leik- og grunnskólum. Börn og unglingar virðast hafa gagn af núvitund rétt eins og fullorðnir og eru yfirleitt ánægð með þá núvitundarþjálfun sem þau hljóta. Rannsóknir benda til þess að með núvitund geti börn og unglingar öðlast meiri ró og sjálfsstjórn, betri einbeitingu og aukna vellíðan. Að auki bendir ýmislegt til þess að núvitund gagnist börnum og unglingum við íþróttaiðkun eins og fullorðnum. This thesis is a final assignment for a B.Ed.- degree within the Faculty of Education specializing in physical education at the University of Akureyri. Mindfulness can be described as a practise of giving attention to your thoughts and feelings non-judgementally and without dwelling on them. Mindfulness has gained ...