Geta öldruð hjón flutt og búið saman á hjúkrunarheimili þegar annað þeirra er metið í þörf fyrir þjónustu vegna heilabilunar? : viðhorf framkvæmdastjóra hjúkrunarheimila

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til BS gráðu í iðjuþjálfunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna viðhorf framkvæmdastjóra hjúkrunarheimila á þeim möguleika að öldruð hjón geti búið saman á hjúkrunarheimili þegar aðeins annað þeirra er metið í þörf fyr...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Þórhildur Sölvadóttir 1995-, Aldís Anna Þorsteinsdóttir 1993-, Eydís Helga Garðarsdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36110
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til BS gráðu í iðjuþjálfunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna viðhorf framkvæmdastjóra hjúkrunarheimila á þeim möguleika að öldruð hjón geti búið saman á hjúkrunarheimili þegar aðeins annað þeirra er metið í þörf fyrir þjónustu vegna heilabilunar. Rannsóknir sýna að þegar aðili flyst inn á hjúkrunarheimili, frá maka sínum, vegna heilabilunar hefur það ýmis áhrif á velferð hjónanna og hlutdeild þeirra í mikilsmetinni iðju. Samkvæmt rannsóknum eru viðhorf heilbrigðisstarfsfólks oft önnur en viðhorf aldraðra hjóna í þessari stöðu og því er persónumiðuð nálgun mikilvæg. Á Íslandi geta hjón ekki búið saman í hjúkrunarrými á öldrunarstofnun nema bæði séu metin í þörf fyrir þjónustu samkvæmt færni og heilsumati. Notast verður við eigindlega rannsóknaraðferð, nánar tiltekið vinnulag grundaðrar kenningar. Gagnaöflun fer fram í viðtalsformi og skilyrði fyrir þátttöku eru að vera starfandi framkvæmdastjóri á hjúkrunarheimili sem býður upp á og hefur reynslu af þjónustu fyrir aldraða einstaklinga með heilabilun á Íslandi. Rannsóknarspurningin sem höfð er að leiðarljósi er: “Hvaða möguleika telja framkvæmdastjórar hjúkrunarheimila á að þróa þjónustu til að öldruð hjón geti búið saman í hjúkrunarrými þegar aðeins annað þeirra er metið í þörf fyrir þjónustu vegna heilabilunar, út frá færni og heilsumati?” Lykilhugtök: heilabilun, öldruð hjón, sambúð, hjúkrunarrými á öldrunarstofnun. This research paper is the final product for a BS degree in Occupational Therapy at the University of Akureyri. The proposed study aims are to explore the attitudes of managing directors of nursing homes towards the possibility of elderly married couples to live together in a nursing home when only one of them is evaluated to need of care because of dementia. Research shows that when a married person moves into a nursing home because of dementia, away from their partner, it has various effects on the couple’s welfare and engagement in meaningful occupation. ...