Löngun til að hafa barnið á brjósti þrátt fyrir ýmsar áskoranir : reynsla kvenna af brjóstagjöf

Bakgrunnur: Brjóstagjöf er almenn á Íslandi og flestar konur velja brjóstagjöf sem fyrsta valkost til að næra barnið sitt eftir fæðinguna. Það eru margar áskoranir sem geta komið í veg fyrir að brjóstagjöfin gangi vel, en stuðningur í nærumhverfi og frá heilbrigðisstarfsfólki getur skipt sköpum varð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lilja Guðnadóttir 1968-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36101
Description
Summary:Bakgrunnur: Brjóstagjöf er almenn á Íslandi og flestar konur velja brjóstagjöf sem fyrsta valkost til að næra barnið sitt eftir fæðinguna. Það eru margar áskoranir sem geta komið í veg fyrir að brjóstagjöfin gangi vel, en stuðningur í nærumhverfi og frá heilbrigðisstarfsfólki getur skipt sköpum varðandi framvindu brjóstagjafar. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu og dýpka skilning á upplifun kvenna af að hafa barn á brjósti, ásamt því að kanna þætti í störfum fagfólks og umhverfi kvennanna sem hafa áhrif á upplifun þeirra. Aðferðafræði: Í rannsókninni var notað eigindlegt rannsóknarsnið, nánar tiltekið Vancouver skólann í fyrirbærafræði. Úrtakið var tilgangsúrtak og tekin voru djúpviðtöl við 14 konur sem nutu þjónustu ung- og smábarnaverndar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Akureyri og höfðu reynslu af brjóstagjöf. Sumar kvennanna voru enn með barnið á brjósti, aðrar voru hættar brjóstagjöf. Niðurstöður: Þátttakendur voru fjórar frumbyrjur og tíu fjölbyrjur sem samtals áttu 26 börn sem þær höfðu verið með á brjósti og því voru 26 mismunandi brjóstagjafasögur greindar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu yfirþemað, löngun til að hafa barnið á brjósti þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Þrjú aðalþemu voru greind; undirbúningur á meðgöngunni, með þrem undirþemum, eðlilegt framhald af meðgöngunni, aðstæður og fyrri reynsla og að leita sér upplýsinga; fyrstu vikurnar, með fimm undirþemum; verkir og sár, nauðsynlegt að fá aðstoð, bindandi, ég gat ekki nært barnið mitt og barnið sjálft og síðasta aðalþemað nefndist að vera sátt við brjóstagjöfina eins og hún er, með þrem undirþemum; þá fór þetta bara að verða svona einfaldara, áhrif umhverfis og að vera sátt við brjóstagjöfina þótt eitthvað verði eftir. Ályktun: Konurnar sýndu mikinn vilja til að hafa börnin sín á brjósti og lögðu bæði líkamlega og andlega hart að sér við brjóstagjöfina. Öllum konunum þótti brjóstagjöfin erfið í upphafi. Makar þeirra og aðrir í nærumhverfinu voru mikilvægir í upplifun af brjóstagjöfinni ásamt því að hafa samfellu í heimaþjónustu ...