Summary: | Rannsóknarritgerð þessi er í formi eigindlegrar rannsóknar á þrifavörum íslensks markaðar.Tilgangur hennar var að rannsaka hvort pláss væri á markaðnum fyrir nýtt umhverfisvænt merki. Lögð var áhersla á að rannsaka yfirborðshreinsa, klósetthreinsa, þvottaefni, uppþvottaefni og handsápur. Rannsakaðir voru helstu markaðsleiðtogar flokkanna og hlutdeild þeirra, með framkvæmd vettvangskönnunnar. Kauphegðun og venjur fólks með mismunandi bakgrunn var einnig könnuð, ásamt vörumerkjavitund þeirra. Það var rannsakað með framkvæmd 24 eigindlegra rannsóknarviðtala. Rannsóknin var unnin af tveimur útskriftarnemum úr BSc í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Nemarnir eru þær Hafdís Eva Árnadóttir og Hafdís Pála Jónasdóttir.
|