Beiting samkeppnisreglna í litlum hagkerfum

Flest vestræn ríki, og mörg önnur, þar á meðal Ísland, hafa lögfest sérstakar samkeppnisreglur. Á Íslandi gilda þannig samkeppnislög nr. 44/2005, með síðari breytingum. Fyrirmyndir flestra þessara reglna eru samkeppnisreglur þær sem gilda í Bandaríkjunum (USA) annars vegar og innan Evrópusambandsins...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Alfreð Andri Alfreðsson 1990-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36023
Description
Summary:Flest vestræn ríki, og mörg önnur, þar á meðal Ísland, hafa lögfest sérstakar samkeppnisreglur. Á Íslandi gilda þannig samkeppnislög nr. 44/2005, með síðari breytingum. Fyrirmyndir flestra þessara reglna eru samkeppnisreglur þær sem gilda í Bandaríkjunum (USA) annars vegar og innan Evrópusambandsins (ESB) hins vegar. Í ritgerð þessari verða kannaðar rætur þessara reglna og þau sjónarmið sem liggja þeim að baki. Sérstaklega verður hugað að því álitaefni hvort samkeppnisreglur, sem mótaðar eru á jafn stórum og víðfeðmum markaðssvæðum og á við um USA og ESB eigi að öllu leyti jafn vel við á mun minni markaðssvæðum, t.d. Íslandi. Kannaðar verða helstu áskoranir sem sem fylgja framkvæmd samkeppnisreglna á litlum mörkuðum. Sérstaklega verður horft til reglna sem gilda um samruna fyrirtækja og reglna sem gilda um markaðsráðandi stöðu og lagt mat á hvort að gildandi samkeppnisreglur að þessu leyti séu til þess fallnar að hámarka velferð neytenda í litlum hagkerfum. Í framhaldinu er litið til réttarframkvæmdar bæði í stærri og minni ríkjum, í þeim tilgangi að komast að því hvort og þá hvers konar tillit þurfi að taka til stærðar hagkerfisins og markaðsaðstæðna sem einkenna lítil hagkerfi, við beitingu samkeppnisreglna. Að lokum er dregin saman niðurstaða um hvað það er sem skiptir mestu máli hvað varðar mótun samkeppnisstefnu í litlum hagkerfum. Most Western states, and many others, including Iceland, have enacted specific competition rules. In Iceland they are called the Competition Act no. 44/2005, as amended. The precursor of these rules are the competition rules that apply in the United States (USA) on the one hand and within the European Union (EU) on the other. This thesis explores the roots of these rules and the perspectives that underlie them. In particular, consideration will be given to whether competition rules that are formulated in as large and wide-ranging market areas as apply to the USA and the EU do not apply equally well in much smaller market areas, e.g. Iceland. The main challenges associated with ...