Eru íslenskir svartþrestir (Turdus merula) að hluta til farfuglar?

Svartþrestir (Turdus merula) eru nýlegir landnemar á Íslandi. Þeir hafa stundað samfellt varp hérlendis síðan 1991 en áður fyrr voru þeir algengir vetrargestir. Varpútbreiðsla þeirra á Íslandi er að mestu bundin við Suðvesturland og hafa þeir verið taldir algjörir staðfuglar. Svartþrestir hafa ekki...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kolbrún Þóra Sverrisdóttir 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35870
Description
Summary:Svartþrestir (Turdus merula) eru nýlegir landnemar á Íslandi. Þeir hafa stundað samfellt varp hérlendis síðan 1991 en áður fyrr voru þeir algengir vetrargestir. Varpútbreiðsla þeirra á Íslandi er að mestu bundin við Suðvesturland og hafa þeir verið taldir algjörir staðfuglar. Svartþrestir hafa ekki náð varpútbreiðslu á Austur- og Suðausturlandi en sjást þar oft á fartímum, sérstaklega á haustin. Margir íslenskir farfuglar fara í gegnum SA-land á leið sinni frá Íslandi til Evrópu og því mætti búast við að finna svartþresti á þessum slóðum á fartíma ef þeir á annað borð sýna farhegðun. Í rannsókninni var gerður samanburður á líkamsástandi, aldurs- og kynjasamsetningu í Reykjavík (íslenskir varpfuglar) við haustfugla á Höfn og athugað hvort finna mætti vísbendingar um hvort þar sé um að ræða flækinga eða íslenska farfugla. Allir fuglarnir voru stærðarmældir, vigtaðir og aldurs- og kyngreindir. Við úrvinnslu gagnanna var búinn til stuðull til þess að meta líkamsástand með því að deila þyngd fuglanna með vænglengd. Niðurstöður leiddu í ljós að fjöldi veiddra fugla á Höfn endurspeglaði ekki fartíma sem búast mætti við hjá íslenskum þröstum. Þar að auki var líkamsástandið á þröstum í Reykjavík að meðaltali 0,85 og marktækt hærra en á Höfn þar sem það var 0,73 (T-próf, P<0,01). Þyngdaraukning kom fram á báðum svæðum fyrrihluta hausts. Munurinn kristallaðist í lægri líkamsástandsstuðli á Höfn samanborið við sama tíma í Reykjavík en þó þyngdust þrestir á Höfn hraðar en í Reykjavík. Aldurshlutföll voru svipuð á svæðunum tveimur og ekki marktækur munur á þeim. Kynjahlutföll voru hins vegar skekkt í átt að kvenfuglum í Reykjavík en þau voru ekki marktækt frábrugðin nær jöfnum kynjahlutföllum á Höfn. Niðurstöðurnar benda eindregið til þess að svartþrestir sem finnast á Höfn að haustlagi séu flækingsfuglar sem villst hafa af leið í fari frá Skandinavíu á leið sinni til vestur Evrópu fremur en íslenskir fuglar á leið úr landi Blackbirds (Turdus merula) are recent settlers in Iceland. They have bred continuously from 1991 ...