Hafnir á Suðurnesjum Skipulagstillaga

Hafnir á Suðurnesjum er þéttbýliskjarni á suðvesturhorni Íslands. Lítil uppbygging hefur átt sér stað í Höfnum, íbúðarhús var síðast byggt þar árið 2012. Grunnþjónusta á borð við skóla, verslanir og afþreyingu er ekki til staðar og þurfa íbúar að sækja alla sína þjónustu í Keflavík,Ytri-Njarðvík eða...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Lilja Margeirsdóttir 1991-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35851
Description
Summary:Hafnir á Suðurnesjum er þéttbýliskjarni á suðvesturhorni Íslands. Lítil uppbygging hefur átt sér stað í Höfnum, íbúðarhús var síðast byggt þar árið 2012. Grunnþjónusta á borð við skóla, verslanir og afþreyingu er ekki til staðar og þurfa íbúar að sækja alla sína þjónustu í Keflavík,Ytri-Njarðvík eða Innri-Njarðvík. Markmið verkefnis er að setja fram grunn að deiliskipulagi í Höfnum á Suðurnesjum. Markmiðið er að leysa skipulagið í anda sjálfbærrar þróunar. Áherslur verkefnis eru þríþættar þ.e. náttúrufarslegar-, manngerðar- og hagrænar forsendur. Þessir þættir eru mikilvægir og nauðsynlegt er að skoða þá og samþætta svo að úr verði gott skipulag. Skipulag svæðisins kallar á samþættingu ólíkra þátta og eru Heimsmarkið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun höfð að leiðarljósi við verkefnið. Forsendur fyrir skipulagi voru niðurstöður greininga á Höfnum á Suðurnesjum, sem var mikilvægur þáttur í undirbúningsvinnu fyrir skipulagstillöguna. Tillaga að deiliskipulagi var lögð fram með áherslu á þéttingu byggðar og aukna þjónustu í samræmi við náttúru og umhverfi.